Íbúðalánasjóður er ógn við jafnvægi í hagkerfinu 13. febrúar 2008 14:39 Erlendur Hjaltason flytur ræðu á Viðskiptaþingi.
Núverandi rekstrarfyrirkomulag Íbúðalánasjóðs er mein í íslensku hagkerfi og skortir mikið á að almenn umræða um hann sé byggð á traustum grunni. Þetta kom fram í máli Erlendar Hjaltasonar, formanns Viðskiptaráðs, á Viðskiptaþingi í dag. „Svo virðist sem stór hluti almennings telji sjóðinn mynda viðnám gegn háum vöxtum bankanna og verður ekki betur séð en að þetta sé ímynd sem Íbúðalánasjóður leggur mikið upp úr að viðhalda. Á meðan Seðlabanki Íslands hækkar stýrivexti til að slá á verðbólgu heldur hið opinbera húsnæðisvöxtum lágum með niðurgreiðslu almennra húsnæðislána í gegnum Íbúðalánasjóð. Þetta jafngildir því að stíga á bremsu og bensíngjöf á sama tíma. Þessi vinnubrögð hins opinbera hafa án nokkurs vafa átt stóran þátt í að spilla fyrir virkni peningastefnunnar og leitt til óhóflegrar hækkunar stýrivaxta. Þetta skaðar sérstaklega þá sem síst skyldi, hópa samfélagsins sem ekki geta varið sig fyrir háum skammtímavöxtum," sagði Erlendur. Erlendur telur að breyta þurfi hlutverki Íbúðalánasjóðs strax og það sé á ábyrgð stjórnvalda að upplýsa um neikvæðar afleiðingar af starfsemi hans. Í núverandi mynd sé hann ógn við jafnvægi í hagkerfinu og fjármálastöðugleika í landinu. Ríkið eigi að hverfa frá samkeppnisrekstri í almennum húsnæðislánum og einbeita sér að virkum félagslegum úrræðum fyrir þá sem raunverulega þurfi aðstoð við að koma þaki yfir höfuðið.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira