Seðlabankinn neitar greiningardeildum Óli Kristján Ármannsson skrifar 27. febrúar 2008 06:00
Bankastjórn Seðlabanka Íslands kveðst ekki sjá til þess forsendur að fulltrúar greiningardeilda bankanna sitji fréttamannafundi bankastjórnar né heldur að bankastjórnin efni sérstaklega til funda með greiningardeildunum. Þetta kemur fram í svari bankastjórnar Seðlabankans til forstöðumanna greiningardeilda stóru viðskiptabankanna þriggja um miðjan mánuðinn. Greiningardeildir bankanna sendu Seðlabankanum sameiginlega erindi nokkrum dögum fyrr þar sem þess er farið á leit að bankastjórn Seðlabankans rökstyðji ákvörðun sína um að neita fulltrúum greiningardeilda bankanna um að sitja fjölmiðlafundi þar sem bankastjórnin kynnir stýrivaxtaákvarðanir sínar og svarar fjölmiðlum. Undir bréfið rita Ásgeir Jónsson fyrir Kaupþing, Edda Rós Karlsdóttir fyrir Landsbankann og Ingólfur Bender fyrir Glitni. Greiningardeildirnar eru með töluverða útgáfu á netinu og fréttaflutning bæði af viðskiptum og efnahagslífi. Veit Markaðurinn til þess að starfsmaður greiningardeildar að minnsta kosti eins bankans spurðist um það símleiðis fyrir áramót hvort hann mætti ekki sitja kynningarfund bankastjórnarinnar, en fékk þau svör að það mætti ekki. Hin eiginlega vaxtaákvörðun er á hendi seðlabankastjóranna þriggja, en þeir hafa kosið að gefa greiningardeildum bankanna ekki kost á að spyrja þá beinna spurninga. Í bréfi greiningardeildanna er sagt munu bæta gegnsæi og framgang peningastefnu Seðlabankans að fundargerðir af vaxtaákvörðunarfundum yrðu birtar opinberlega, líkt og þekkist hjá Seðlabanka Englands. „Að sama skapi myndi það auka gegnsæi verulega ef greiningardeildirnar fengju tækifæri til þess að spyrja bankastjórnina sjálfa spurninga í tengslum við vaxtaákvarðanir líkt og fjölmiðlar hafa nú á sérstökum blaðamannafundum," segir í bréfinu. Í svarbréfi Seðlabankans er hins vegar á það bent að því fari fjarri að allir seðlabankar með verðbólgumarkmið birti fundargerðir af vaxtaákvörðunarfundum. Þá segist bankastjórnin ekki þekkja þess dæmi að fulltrúar greiningardeilda sitji fréttamannafundi bankastjórna seðlabanka um vaxtaákvarðanir. „Þess má raunar geta að það er ekki algilt að fréttamannafundir séu haldnir um vaxtaákvarðanir," segir bankastjórnin í svarbréfi sínu og bendir á að sérfræðingar Seðlabankans fundi þegar sérstaklega með greiningardeildum bankanna. Samkvæmt heimildum Markaðarins gætir hins vegar nokkurrar óánægju með afsvar Seðlabankans hjá greiningardeildunum, því þótt þær séu ánægðar með aðgengi að sérfræðingum Seðlabankans vilji þær einnig fá að leggja spurningar fyrir bankastjórnina.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira