Stórkaupmenn kjósa um framtíðina 27. febrúar 2008 06:00 Pétur Björnsson
Kosið verður um aflagningu Félags íslenskra stórkaupmanna (FÍS) á aðalfundi félagsins 7. mars og um samninga við Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) um stofnun nýrra heildarsamtaka. „Ég get staðfest að fram kom lagabreytingartillaga fyrir lok tilskilins frests,“ segir Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri FÍS. Til þess að tillagan nái fram að ganga þarf stuðning tveggja þriðju atkvæða. Tillöguna leggja fram Pétur Björnsson, stjórnarformaður Ísfells og fyrrverandi formaður FÍS, og Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdastjóri PFAFF og formaður Félags kvenna í atvinnurekstri, en hún er fyrrverandi varaformaður FÍS. Margét Kristmannsdóttir Viðræður um sameiningu félaganna höfðu staðið um nokkurt skeið í haust, en voru lagðar til hliðar þegar ekki náðist einhugur í stjórn FÍS um stefnuna. Tillaga Péturs og Margrétar kemur því málinu aftur á dagskrá. „Við töldum málið komið það langt að okkur þótti rétt að leggja þetta fyrir félagsmenn,“ segir Margrét og telur mikinn stuðning við stefnuna í félaginu. „Margir sjá hér tækifæri til að búa til langþráðan vettvang, þar sem fyrirtæki í verslun í landinu geta sameinast í einu hagsmunagæslufélagi. Það hefur alltaf staðið okkur nokkuð fyrir þrifum og veikt okkur gagnvart ýmsum aðilum, svo sem hinu opinbera, að við höfum ekki borið gæfu til að koma fram sem ein heild,“ segir hún og telur skiptingu félaganna í raun leifar frá fyrri tíð. „Núna teljum við bara að að það sé svo miklu meira sem sameinar okkur en sundrar.“ - óká
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira