Skipti líklega ein í Slóveníu 27. febrúar 2008 06:00 Brynjólfur Bjarnason fréttir af því að keppinautarnir hætti við hafa engin áhrif á áform Skipta. „
Við höldum okkar viðræðum við slóvensku einkavæðingarnefndina áfram,“ segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Skipta. Slóvenskir fjölmiðlar fullyrða að keppinautur Skipta hafi tekið aftur tilboð sitt í slóvenska landsímann. Félögin Bain Capital, Axos Capital og BT buðu sameiginlega í tæplega helmingshlut slóvenska ríkisins í slóvenska landsímanum, Telekom Slovenije, á móti Skiptum, móðurfélagi Símans. Brynjólfur Bjarnason segir að þessi tíðindi hafi engin áhrif á Skipti og viðræður þeirra. Mestu máli skipti að niðurstaða liggi fyrir sem fyrst. Slóvensk fjarskiptayfirvöld ítrekuðu á blaðamannafundi í gær að báðir bjóðendur hefðu frest til föstudags til að endurskoða tilboð sín. Ákvörðun einkavæðingarnefndar landsins myndi svo liggja fyrir hinn 3. mars. Hermt er í slóvenskum fjölmiðlum að Bain, Axos og BT hafi tilkynnt einkavæðingarnefndinni að tilboð hópsins yrði ekki endurskoðað fyrir föstudag. Hópurinn er óánægður með tafir í viðræðuferlinu. Samkvæmt heimildum Markaðarins hjá slóvenskum fjarskiptayfirvöldum, var sú tilkynning tilefni blaðamannafundarins í gær. Skipti höfðu áður skrifað einkavæðingarnefndinni og kom fram í yfirlýsingu frá henni fyrir helgi að Skipti hefðu einnig hótað að taka tilboð sitt aftur. Eitt meginskilyrðið fyrir einkavæðingu Landsímans hér á sínum tíma var að félagið yrði skráð á almennan hlutabréfamarkað, í síðasta lagi um síðustu áramót. Fjármálaráðherra veitti Skiptum undanþágu frá þessu, vegna viðræðna um kaup á slóvenska símanum. Skipti hafa lýst því yfir að félagið verði skráð á hlutabréfamarkað í mars. - ikh
Mest lesið JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira