Íslensk skattyfirvöld vilja leyniupplýsingar Ingimar Karl Helgason skrifar 27. febrúar 2008 10:25 „
Við fylgjumst með því hvernig norræn skattyfirvöld fá þessar upplýsingar. Við höfum auðvitað alltaf áhuga á að fá upplýsingar, en það yrði aldrei þannig að við myndum kaupa þær eins og þeir gerðu í Þýskalandi," segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. Fram kemur í norrænum fjölmiðlum að skattyfirvöld í Finnlandi, Svíþjóð og Noregi hafi þegar haft samband við þýsk stjórnvöld og óskað eftir að fá upplýsingar um leynireikninga í Liechtenstein. Það hafa yfirvöld í Hollandi einnig gert. Þá eru Danir að undirbúa sams konar beiðni. Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri segir ekki ólíklegt að málið verði rætt við norræn skattyfirvöld. Þýsk stjórnvöld segjast hafa upplýsingar um 1.400 leynireikninga í Liechtenstein. 600 þeirra séu í eigu Þjóðverja en fólk af öðru þjóðerni eigi hina reikningana 800. Talið er að á fimmta þúsund manns tengist reikningunum. Dæmi mun vera um að Íslendingur hafi geymt eignir í Liechtenstein með svipuðum hætti. Grunur er um að auðmenn hafi fært þangað fé til að fela fyrir skattyfirvöldum. Der Spiegel segir að milljarðar evra hafi farið framhjá skattyfirvöldum í Þýskalandi með þessum hætti. Tveir bankar í smáríkinu séu nú til rannsóknar. Thorsten Albig, talsmaður þýska fjármálaráðuneytisins, segir í samtali við Financial Times, að þýsk yfirvöld séu tilbúin til að veita upplýsingar. Ekki verði óskað eftir greiðslu fyrir þær. „Við höfum ekkert ákveðið í málinu og okkur hafa ekki verið boðnar upplýsingarnar," segir Bryndís Kristjánsdóttir. „Þegar þar að kemur kunnum við að óska eftir þeim á grundvelli tvísköttunarsamninga við önnur Norðurlönd og Þýskaland." Björn Þorvaldsson, aðstoðarsaksóknari hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, segir að málið sé af því taginu að deildin og skattrannsóknarstjóri gætu átt um það samstarf. „Það er ekki komið svo langt, en ég útiloka ekki að efnahagsbrotadeildin muni taka þátt í því." Liechtenstein er á lista OECD yfir ósamvinnuþýðar skattaparadísir.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira