Stórfelldar breytingar hjá Skífunni Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. febrúar 2008 05:00 Hjá Árdegi er unnið að breytingum hjá bæði Skífunni og BT, en um mánarmótin næstu verður til vörumerkið Skífan Express.
Verslun Skífunnar í Smáralind verður lokað um næstu mánaðamót. Um leið verður sala á tónlist í verslunum BT færð undir nýtt merki Skífunnar Express. Þá er áformað að opna „tónlistarkaffihús“ tengt Skífunni á Laugavegi fyrir sumarið. Sverrir Berg Steinarsson, forstjóri og annar aðaleigandi Árdegis sem á bæði Skífuna og BT, segir í raun verið að færa út kvíarnar í tónlistarsölu og efla hana með því að fara víðar með Skífuna í smærri einingum. Engar uppsagnir verða vegna breytingarinnar segir hann. Þá verður áfram opin verslun Skífunnar í Kringlunni. „Þetta er mjög spennandi og verður gaman að fara með Skífuna víðar í smærri útgáfu,“ segir Sverrir og bætir við að um leið verði vöruúrval í tónlist „dýpkað og breikkað“. Sverrir segir svo að áfram verði unnið að því að efla Skífuna. „Á Laugaveginum ætlum við að bæta í fyrir sumarið. Í kjallara Skífunnar höfum við verið með útgáfutónleika og annað slíkt og höfum hug á að nýta þá aðstöðu betur. Verið er að leita að samstarfsaðila um rekstur nokkurs konar tónlistarkaffihúss, ekki ósvipað bókakaffihúsum sem fólk þekkir, en þetta ætlum að reyna að vera komin með í gang fyrir sumarið.“ Að auki segir Sverri svo að í mars ljúki framkvæmdum við komuverslun Skífunnar í Leifsstöð. „Þar erum við að innrétta nýja Skífuverslun, þannig að það er nóg að gera.“
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira