Sólveig Káradóttir: Mætti með bítlasoninn Dhani til Yoko 11. október 2007 07:30 Sólveig Káradóttir segir Dhani vera góðan vin en vill ekkert tjá sig frekar um samband þeirra. „
Ég vil ekkert tjá mig um þetta og ætli ég haldi mig ekki bara við aðstoðarmanna-söguna," segir fyrirsætan og sálfræðineminn Sólveig Káradóttir. Sólveig, sem er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deCODE, hefur þráfaldlega verið orðuð við Dhani Harrison, son Bítilsins George Harrison og Oliviu Harrison. Þær sögusagnir fengu byr undir báða vængi þegar þau mættu saman í móttöku borgarstjóra Reykjavíkur í Hafnarhúsinu eftir að hafa fylgst með ekkju Johns Lennon, Yoko Ono, kveikja á Friðarsúlunni úti í Viðey. Vísir greindi frá vinfengi þeirra Sólveigar og Dhani í september en þá vildi Sólveig ekkert kannast við að örvar Amors hefðu hæft þau í hjartastað heldur að hann væri „aðstoðarmaður hennar", eins og hún komst að orði þá. Sólveig sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að þau Dhani hafi ekki staldrað lengi við meðal þotuliðsins í Hafnarhúsinu. Enda kunni hún ekkert sérstaklega vel við sig í slíkum hópi. Dhani fékk síðan far með Ringo Starr á einkaþotunni og flaug til London en Sólveig er á leið til New York þar sem hún hyggst klára BA-ritgerð sína í sálfræði. En samband þeirra Sólveigar og Dhani er farið að vekja athygli og Egill Helgason sá sig knúinn til að greina frá því á bloggi sínu að hann hefði jafnvel séð vísi að sköpun næsta tengdasonar þjóðarinnar í hlaðborði borgarstjórans. „Dhani var í fylgd […] með ljóshærðri íslenskri stúlku. Ég sá ekki betur en að hann væri að kyssa hana. Nýr tengdasonur fyrir þjóðina?" spyr Egill á bloggi sínu og bætir því við að Dhani hafi verið sá eini úr Bítlafamilíunni sem hann hafi komist í tæri við og hann hafi lýst yfir ánægju sinni með útgáfu Dhani og Jakobs Dylan, syni Bob Dylan, á laginu Gimme Some Truth. Sólveig er dóttir Kára Stefánssonar, forstjóra deCODE, og hefur getið sér gott orð fyrir fyrirsætustörf. Dhani er hins vegar meðlimur í electro-blues hljómsveitinni thenewno2.
Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Sjá meira