Kallinn fluttur til geðhjúkrunarfræðingsins Breki Logason skrifar 31. desember 2007 14:35 Geðhjúkrunarfræðingurinn fékk kaldar kveðjur frá konunni á Bylgjunni. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. „
Ég vil þakka fyrir titilinn símtal ársins á Bylgjunni," segir konan sem hringdi inn á Bylgjuna á dögunum og upplýsti hlustendur um bólfarir mannsins síns með geðhjúkrunarfræðingi á Landspítalanum. Konan sem er 51 árs gömul er listmálari og býr í Breiðholtinu en símtal hennar í Reykjavík síðdegis á dögunum vakti mikla lukku og gekk manna á milli á netinu. Konan segir að viðbrögðin við símtalinu hafi gefið sér mikið. „Þetta er búið að halda mér á floti og það er gaman að heyra hvernig fólk hefur tekið í þetta, mér hefur verið hrósað og ég hef heyrt það meðal annars á hárgreiðslustofum bæjarins." Konan vill þó halda nafni sínu leyndu en hefur þó meiri upplýsingar um geðhjúkrunarfræðinginn sem er að sofa hjá manninum hennar. „Hún er 177cm, ljóshærð og býr í miðbænum. Hún er víst alveg hrikalega geðvond og er að reyna að sálgreina manninn minn. Hann býr núna hjá henni en er að sofa hjá mér," segir konan sem heldur því fram að geðhjúkrunarfræðingurinn sé að sálgreina manninn. „Hún er að reyna að hafa eitthvað upp úr honum og þykist vita hvað hann er að hugsa, hann fær ekki einu sinni að hugsa sjálfstætt." Konan segist hafa heyrt í manninum sínum í morgun og hafi hann þá verið hinn hressasti. „Hann sagði mér að hún hefði verið í geðveiku skapi í gærkvöldi." Klippa: Kona kemur á óvart í símatíma Reykjavík síðdegis Hægt er að hlusta á umræddan símatíma í Reykjavík síðdegis í spilaranum hér fyrir ofan. Konan hringir inn eftir um fjórar mínútur. Aðspurð hvers vegna hún hafi hringt inn á Bylgjuna til þess að deila ástandinu á heimilinu með fólki segir listmálarinn. „Það var nú bara þörfin fyrir það að láta þetta heyrast og láta fólkið í þjóðfélaginu vita hvað sé í gangi. Þetta er hið dularfyllsta mál en það hefur hjálpað mér hvað fólk er að taka þessu vel." Konan segist hafa verið í sambúð með manninum í fimm ár en hún er heimavinnandi listmálari með tvo unglinga. „Geðhjúkrunarfræðingurinn hitti hann bara á einhverjum bar og sá aumingjasvipinn á honum. Ætli hún hafi ekki séð að hún gæti stjórnað hugsunum hans," segir konan en ekkert hefur verið ákveðið hjá hvorri konunni þessi kvensæli maður muni eyða áramótunum. „Ég ætla nú að reyna að vinna hann tilbaka enda er þetta góður maður. Hann hefur auðvitað sýnt tvöfeldni í þessu máli en ég er alltaf til í að fyrirgefa."
Mest lesið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Sjá meira