Rólegt á götum Kaupmannahafnar í morgun 2. mars 2007 09:16
Lögregla býr sig undir harða öldu mótmæla á Norðurbrú í dag en þar sem hundruð mótmælenda voru handteknir í gær er búist við því að eitthvað verði rólegra í dag. Rólegt hefur verið á götum Kaupmannahafnar í morgun en þó eru enn einhverjar götur lokaðar og til að mynda hefur strætóleiðum verið breytt framhjá átakasvæðunum. Lögreglumenn bíða í rútum eftir því að átök brjótist út á ný og haft er eftir lögreglumanni á vef Politiken að menn sitji rólegir og bíði meðan þeir gæða sér á kaffi og franskbrauði með jarðaberjasultu. Kaupmannahafnarlögreglunni hefur borist liðsauki bæði frá Fjóni og Jótlandi og hefur aldrei verið meiri lögregluviðbúnaður í Kaupmannahöfn. Aðstandendur Ungdomshuset hafa boðað fund í kvöld þar sem líklega verður ákveðið með næstu skref. Bæði danskir fjölmiðlar og Ritt Bjerregaard borgarstjóri Kaupmannahafnar hafa hrósað löreglunni fyrir aðgerðirnar í gær og eru sammála um að bæði rýming hússins og að halda mótmælendum í skefjum hafi tekist mjög vel þrátt fyrir geysilega erfiðar aðstæður. Bjerregaard kom fyrr heim úr fríi í Noregi vegna atburðana á Norðurbrú. Hún vísaði því í gær á bug að það væri stjórnmálamönnum að kenna hvernig komið væri fyrir Ungdomshuset og þeim sem þar hafa haldið sig. Hún benti á að fólkinu hefði verið boðið annað húsnæði og leitað hefði verið allra lausna á málinu. Fjórir slösuðust alvarlega í átökunum í gær. Sá sem slasaðist verst brann illa á hendi þegar bensínsprengja sprakk í höndunum á honum. Mynd/TeiturMynd/TeiturMynd/HariMynd/TeiturMynd/HariMynd/HariMynd/Hari
Tengdar fréttir 90 handteknir vegna mótmæla Lögreglan í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar handtók 90 mótmælendur á unglingsaldri við samkomuhús trúfélagsins Faderhuset á sunnudag. Vildu ungmennin mótmæla fyrirhuguðum flutningi æskulýðsstarfs trúfélagsins í byggingu sem nú hýsir Ungdomshuset, samkomustað ungs fólks á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. 28. nóvember 2006 01:15 Ætlar borgin að rífa húsið strax í dag? Ungmenni sem haft hafa aðstöðu í Ungdomshuset hafa kveikt elda á Nörrebrogade og henda nú grjóti og flöskum í átt að lögreglu sem stendur vakt um Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum Vísir ætlar lögregla að standa vörð um húsið í dag á meðan stórvirkar vinnuvélar koma og rífa það niður, þetta er þó ekki staðfest. Þá munu ungmenni vera að skipuleggja tilraun til að komast aftur inn í húsið. 1. mars 2007 09:25 Lögregla eykur viðbúnað vegna mótmæla Lögregla eykur enn viðbúnað við Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Fjölmörgum leikskólum og skólum í Nörrebro-hverfinu hefur verið lokað. Þá er lögregla með sérstaka vakt við Stórabeltis-brúnna þar sem búist er við því að ungmenni víðsvegar að í landinu ætli að flykkjast til Kaupmannahafnar til að taka þátt í að mótmæla aðgerðum lögreglunnar við Ungdomshuset. Mótmælendum hefur þegar fjölgað mikið og hefur lögregla að sama skapi aukið viðbúnað sinn. Nokkrir götueldar loga nú í götunum í kringum Jagtvej, þar sem Ungdomshuset stendur en lögregla hefur lokað Jagtvej í báða enda. 1. mars 2007 10:19 Lögregla rýmdi Ungdomshuset Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup og rýmdi Ungdomshuset á Norrebro á svipstundu í morgun. Þegar hefur fjöldi mótmælanda safnast saman og búist er við hörðum átökum. Lögregla hefur handtekið um 20 mótmælendur, þ.á.m. hóp sem reyndi að komast framhjá vegtálmum. 1. mars 2007 07:52 Merkri sögu Ungdomshuset að ljúka Í dag lauk langri sögu Ungdomshuset sem hefur verið vinsæll samkomustaður fyrir ungmenni Kaupmannahafnar í marga áratugi. Átökin milli þeirra og borgaryfirvalda hafa stigmagnast á síðustu misserum og náðu hámarki með rýmingu hússins í morgun. Fróðlegt er að skoða forsögu hússins í ljósi atburða dagsins. 1. mars 2007 12:15 260 handteknir eftir mótmæli í Kaupmannahöfn Yfir 260 ungmenni voru handtekin í Kaupmanna í gær þegar friðsamleg mótmæli til stuðnings félagsmiðstöðinni Ungdomshuset leystust upp í óeirðir.Talið er að um 800 manns hafi tekið þátt í mótmælunum en þegar einhverjir mótmælenda fóru ekki að fyrirmælum lögreglunnar leysti hún hópinn upp. 25. september 2006 10:00 Rífa húsið strax í dag Lögregla ætlar að rífa Ungdomshuset strax í dag og þegar hefur sprengiefni verið flutt inn í húsið. Aðstandendur hússins hafa boðað frekari fjöldamótmæli í kvöld og búist er við miklum fjölda. Á áttunda tug hafa verið handteknir í mótmælunum. 1. mars 2007 11:08 Óeirðir við Kristjaníu Óeirðir eru að brjótast út við Kristjaníu í Kaupmannahöfn en þar hafa ungmenni reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. Slökkvilið er á staðnum og reynir að slökkva eldana.Talið er að ungmennin séu að reyna að draga athygli lögreglunnar frá Ungdomshuset á Norrebro. Þar hafa einnig verið kveiktir götueldar og þar er lögregla með mikinn viðbúnað. 1. mars 2007 09:39 Hörð átök á Norðurbrú Stríðsástand ríkti í Kaupmannahöfn í gær eftir að lögreglan hafði rýmt Ungdómshúsið á Norðurbrú. 2. mars 2007 06:15 Umsátur á Norðurbrú Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup á Ungdomshuset á Norðurbrú í morgun og rýmdi það á svipstundu. Til harðra átaka hefur komið. Óeirðir eru einnig að brjótast út í Kristjaníu þar sem ungmenni hafa reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. 1. mars 2007 12:04 Búast við áframhaldandi látum í dag Meira en 200 hafa verið handteknir og þrír eða fjórir mótmælendur hafa slasast alvarlega í átökum lögreglu og mótmælenda á Norðurbrú í Kaupmannahöfn en lögregla rýmdi Ungdomshuset svokallaða með áhlaupi í gærmorgun. Heldur var rólegra í nótt en í gærkvöldi en lögregla býst við miklum látum áfram í dag. 2. mars 2007 06:55 Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira
90 handteknir vegna mótmæla Lögreglan í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar handtók 90 mótmælendur á unglingsaldri við samkomuhús trúfélagsins Faderhuset á sunnudag. Vildu ungmennin mótmæla fyrirhuguðum flutningi æskulýðsstarfs trúfélagsins í byggingu sem nú hýsir Ungdomshuset, samkomustað ungs fólks á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. 28. nóvember 2006 01:15
Ætlar borgin að rífa húsið strax í dag? Ungmenni sem haft hafa aðstöðu í Ungdomshuset hafa kveikt elda á Nörrebrogade og henda nú grjóti og flöskum í átt að lögreglu sem stendur vakt um Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Samkvæmt heimildum Vísir ætlar lögregla að standa vörð um húsið í dag á meðan stórvirkar vinnuvélar koma og rífa það niður, þetta er þó ekki staðfest. Þá munu ungmenni vera að skipuleggja tilraun til að komast aftur inn í húsið. 1. mars 2007 09:25
Lögregla eykur viðbúnað vegna mótmæla Lögregla eykur enn viðbúnað við Ungdomshuset í Kaupmannahöfn. Fjölmörgum leikskólum og skólum í Nörrebro-hverfinu hefur verið lokað. Þá er lögregla með sérstaka vakt við Stórabeltis-brúnna þar sem búist er við því að ungmenni víðsvegar að í landinu ætli að flykkjast til Kaupmannahafnar til að taka þátt í að mótmæla aðgerðum lögreglunnar við Ungdomshuset. Mótmælendum hefur þegar fjölgað mikið og hefur lögregla að sama skapi aukið viðbúnað sinn. Nokkrir götueldar loga nú í götunum í kringum Jagtvej, þar sem Ungdomshuset stendur en lögregla hefur lokað Jagtvej í báða enda. 1. mars 2007 10:19
Lögregla rýmdi Ungdomshuset Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup og rýmdi Ungdomshuset á Norrebro á svipstundu í morgun. Þegar hefur fjöldi mótmælanda safnast saman og búist er við hörðum átökum. Lögregla hefur handtekið um 20 mótmælendur, þ.á.m. hóp sem reyndi að komast framhjá vegtálmum. 1. mars 2007 07:52
Merkri sögu Ungdomshuset að ljúka Í dag lauk langri sögu Ungdomshuset sem hefur verið vinsæll samkomustaður fyrir ungmenni Kaupmannahafnar í marga áratugi. Átökin milli þeirra og borgaryfirvalda hafa stigmagnast á síðustu misserum og náðu hámarki með rýmingu hússins í morgun. Fróðlegt er að skoða forsögu hússins í ljósi atburða dagsins. 1. mars 2007 12:15
260 handteknir eftir mótmæli í Kaupmannahöfn Yfir 260 ungmenni voru handtekin í Kaupmanna í gær þegar friðsamleg mótmæli til stuðnings félagsmiðstöðinni Ungdomshuset leystust upp í óeirðir.Talið er að um 800 manns hafi tekið þátt í mótmælunum en þegar einhverjir mótmælenda fóru ekki að fyrirmælum lögreglunnar leysti hún hópinn upp. 25. september 2006 10:00
Rífa húsið strax í dag Lögregla ætlar að rífa Ungdomshuset strax í dag og þegar hefur sprengiefni verið flutt inn í húsið. Aðstandendur hússins hafa boðað frekari fjöldamótmæli í kvöld og búist er við miklum fjölda. Á áttunda tug hafa verið handteknir í mótmælunum. 1. mars 2007 11:08
Óeirðir við Kristjaníu Óeirðir eru að brjótast út við Kristjaníu í Kaupmannahöfn en þar hafa ungmenni reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. Slökkvilið er á staðnum og reynir að slökkva eldana.Talið er að ungmennin séu að reyna að draga athygli lögreglunnar frá Ungdomshuset á Norrebro. Þar hafa einnig verið kveiktir götueldar og þar er lögregla með mikinn viðbúnað. 1. mars 2007 09:39
Hörð átök á Norðurbrú Stríðsástand ríkti í Kaupmannahöfn í gær eftir að lögreglan hafði rýmt Ungdómshúsið á Norðurbrú. 2. mars 2007 06:15
Umsátur á Norðurbrú Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup á Ungdomshuset á Norðurbrú í morgun og rýmdi það á svipstundu. Til harðra átaka hefur komið. Óeirðir eru einnig að brjótast út í Kristjaníu þar sem ungmenni hafa reist vegatálma og fleygt bensínsprengjum. 1. mars 2007 12:04
Búast við áframhaldandi látum í dag Meira en 200 hafa verið handteknir og þrír eða fjórir mótmælendur hafa slasast alvarlega í átökum lögreglu og mótmælenda á Norðurbrú í Kaupmannahöfn en lögregla rýmdi Ungdomshuset svokallaða með áhlaupi í gærmorgun. Heldur var rólegra í nótt en í gærkvöldi en lögregla býst við miklum látum áfram í dag. 2. mars 2007 06:55