Innlent

Ekki von á viðbrögðum frá Geysi Green að svo stöddu

Auður Nanna Baldvinsdóttir, kynningarfulltrúi hjá Geysi Green.
Auður Nanna Baldvinsdóttir, kynningarfulltrúi hjá Geysi Green. MYND/Hörður

Engin viðbrögð hafa borist frá Geysi green energy í kjölfar þess að borgarráð samþykkti að hafna samruna Reykjavík energy invest og GGE. Auður Nanna Baldvinsdóttir, kynningarfulltrúi GGE, segir að ekki sé von á viðbrögðum í dag.

„Við lásum um þetta í fjölmiðlum eins og aðrir og erum einfaldlega að vinna í málinu," sagði Auður Nanna í samtali við Vísi. Hún sagðist reikna með að fyrirtækið tjái sig ekki um málið fyrr en á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×