Viðskipti innlent

Bjarni kaupir í Glitnir Property Holding

Bjarni Ármannsson fjárfesti í 12% hlut í Glitnir Property Holding.
Bjarni Ármannsson fjárfesti í 12% hlut í Glitnir Property Holding.

Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, hefur fest kaup á 12% hlut í dótturfélagi Glitnis, Glitnir Property Holding (GPH), að verðmæti 970 milljónir. Glitnir mun áfram eiga 48,8% í GPH eftir viðskiptin. Samningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki stjórnar GPH og annarra eigenda, en þeir eru alls 21 talsins og eiga hlut á móti Glitni í GPH.

„Hagnaður Glitnis af sölunni nemur u.þ.b. 300 milljónum króna en þar að auki færist til tekna söluhagnaður að fjárhæð 1,5 milljarðar vegna tilfærslu eftirstandandi eignarhlutar út úr samstæðu bankans. Ef tekið er mið af nýjustu viðskiptum er óinnleyst gangvirðisbreyting eftirstandandi hlutar í kringum 1 milljarður króna," segir í tilkynningu frá Glitni

Bjarni Ármannsson verður tilnefndur í stjórn Glitnir Property Holding. Stjórn félagsins skipa þeir Lárus Welding, Alexander Guðmundsson, Morten Bjørnsen, Knut Marius Stokke, Bjørn Henningsen, Peter Leimdörfer, Petter Bjørnstad og Frank Reite, sem er stjórnarformaður.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×