Ákvörðun Seðlabankans lækkar markaðsvexti 22. desember 2007 11:58
Frá því að Seðlabankinn tilkynnti um óbreytta stýrivexti á fimmtudag hefur ávöxtunarkrafa á markaði lækkað töluvert. Ávöxtunarkrafa allra markflokka skuldabréfa hækkaði hinsvegar verulega eftir hækkun stýrivaxta í byrjun nóvember. Greining Landsbankans fjallar um þetta í Vegvísi sínum. Þar segir að þetta kunni að skýrast af ólíkum áherslum í rökstuðningi bankans fyrir ákvörðuninni. Í tilkynningu bankans í nóvember fólust fyrirheit um frekari hækkanir ef að hagvísar sem lægju fyrir við vaxtaákvörðunina á fimmtudag gæfu til kynna meiri efnahagsumsvif og verðbólguþrýsting en gert var ráð fyrir í spá bankans. Eins og Seðlabankinn benti sjálfur á í gær er ljóst að hann hefur heldur vanmetið kraftinn í efnahagslífinu. Þrátt fyrir það ákvað hann að hækka vexti ekki frekar og gaf ótvírætt til kynna að lækkandi eignaverð myndi að öllum líkindum leiða til samdráttar í eftirspurn og hjálpa til við að ná verðbólgunni niður. Ekki var sama áhersla og áður á að vaxtamunur þyrfti að styðja við gengið og vinna þannig gegn verðbólgu. Bankinn er því farinn að horfa meira á þróun á fasteignamarkaði við ákvörðun sína og það kann að leiða til þess að honum verði fært að lækka vexti hraðar en ella.
Mest lesið Slugsagjöldin „neyðarúrræði“ og „ekki til að græða“ Neytendur Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Óskar eftir starfslokum Viðskipti innlent Íslensku KFC-feðgarnir í Danmörku gjaldþrota Viðskipti erlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Almannatenglar stofna fjölmiðil Viðskipti innlent Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sjá meira
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent