Greining Kaupþings gerir ekki ráð fyrir stýrivaxtahækkun 17. desember 2007 17:03
Greiningardeild Kaupþings gerir ekki ráð fyrir vaxtahækkun á næsta vaxtaákvörðunarfundi Seðlabankans þann 20. desember. Í umfjöllun um málið í Hálf fimm fréttum deildarinnar segir m.a. að mikið vatn hafi runnið til sjávar frá síðasta vaxtaákvörðunarfundi bankans 1. nóvember síðastliðinn - lausafjárskortur á alþjóðamörkuðum er enn viðvarandi og hlutabréfaverð hefur haldið áfram að lækka um allan heim. "Það er nú ljóst að lausafjárkrísan mun brátt fara að verka sem hemill á íslenska hagkerfið þar sem lánakjör hafa versnað í útlöndum og íslenskar lánastofnanir eru orðnar mjög tregar til útlána líkt og systur þeirra ytra. Flest bendir til þess að veðrabrigði séu í nánd hérlendis með kólnun hagkerfisins - um leið og jólaskapið rennur af mönnum á nýju ári og gríðarlega háir raunvextir fara að segja til sín." Greiningardeildin segir að við þetta bætist einnig að síðasta vaxtahækkun þann 1. nóvember síðastliðinn hefur skilað verulegu aðhaldi, s.s. með hækkun á vöxtum allra fasteignalánveitenda hérlendis. Aukinheldur hafa þeir lykilatburðir sem nefndir voru í síðustu Peningamálum sem ástæða fyrir frekari vaxtahækkunum - þ.e. nýir kjarasamningar og lækkun krónunnar - ekki komið fram. Það er ólíklegt að mati Greiningardeildar að Seðlabankinn hækki vexti ofan í ógerða kjarasamninga eða ósamþykktar skattalækkanir af hálfu ríkisins - enda engin ástæða til þess að ætla að óreyndu að aðilar vinnumarkaðarins fari út fyrir sett mörk varðandi efnahagslegan stöðugleika.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Neytendur Eiginmaðurinn á von á sérstaklega flottri jólagjöf þetta árið Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkar um tæplega hundrað krónur á nýju ári Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Viðskipti innlent Lengja opnun, gleðja starfsfólk og spara peninga Neytendur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Viðskipti innlent Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“ Atvinnulíf Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Sjá meira