Íhuga að leggja niður Ísafold vegna "ritskoðunar" Jóns Helga Andri Ólafsson skrifar 7. desember 2007 15:59 Jón Trausti brá á það ráð að selja Ísafold fyrir utan Nóatún eftir Kaupás tók tímaritið úr sölu.
Útgáfufélagið Birtíngur íhugar alvarlega að leggja niður tímaritið Ísafold og sameina ritstjórn þess tímaritinu Nýtt Líf. Samkvæmt heimildum Vísis var þetta á meðal þess sem var rætt á fundi helstu stjórnenda útgáfufélagsins í morgun. Ástæðan er sú að forsvarsmenn Birtíngs telja alvarlega hafi verið vegið að rekstrargrundvelli Ísafoldar þegar Jón Helgi Guðmundson og fyrirtæki hans, Kaupás, sem reka Nóatún, Krónuna og 11-11, ákvað að taka tímaritið úr sölu eftir að Ísafold birti grein um tengsl Gunnars I Birgissonar bæjarstjóra í Kópavogi við nektardansstaðinn Goldfinger. Með ákvörðun sinni rifti Kaupás einhliða samningi sínum við Ísafold um að tímaritinu yrði dreift í verslunum félagsins. Jón Trausti Reynisson, ritstjóri Ísafoldar, vildi ekki staðfesta að heimildir Vísis um málið væru réttar þegar hann var spurður um málið í dag. Hann sagði hins vegar að ekkert stórt tímarit gæti lifað það af að vera ekki á boðstólum í verslunum Nóatúns 11-11 og Krónunnar. Jón Trausti segist hafa rætt þessi mál við Jón Helga í þrígang án þess að fá nokkra niðurstöðu. "Þriðja samtali okkar lauk á þeim orðum Jóns Helga að við hefðum átt að hugsa okkur betur um áður en við fórum að dreifa óhróðri," segir Jón Trausti. Eins og Vísir greindi frá fyrr í dag sendi Blaðamannafélag Íslands frá sér tilkynningu um málefni Ísafoldar í dag. Í henni segir; "Blaðamannafélag Íslands telur óþolandi að áhrifamenn reyni í krafti valds síns, auðæfa eða viðskiptahagsmuna að hafa áhrif á skrif fjölmiðla. Mislíki mönnum umfjöllun fjölmiðla eiga þeir þess kost að leita til siðanefndar Blaðamannafélags Íslands eða dómstóla. Með aðgerðum sínum gagnvart tímaritinu Ísafold lítur út fyrir að stórfyrirtæki á Íslandi sé að beita áhrifum sínum á markaði til að knésetja tímarit og veigri sér ekki við að brjóta gerða samninga til að ná markmiði sínu." Ekki náðist í forsvarsmenn Kaupás í dag þar sem nú fer fram ársfundur móðurfélags þess, Norvik.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira