Stærstu hluthafar eru tólf milljarða í mínus 5. desember 2007 09:04 Þorsteinn M. Jónsson (til vinstri) og Hannes Smárason (til hægri) væru í vondum málum ef þeir þyrftu að selja bréf sín í FL Group á hlutafjáraukningagenginu 14,7.
Ef þrír af fjórum stærstu hluthöfum FL Group seldu hluti sína í félaginu nú á gengi nýrrar hlutafjáraukningar 14,7 myndu þeir vera tæpa tólf milljarða í mínus. Hannes Smárason, Gnúpur og félagarnir Magnús Ármann og Þorsteinn M. Jónsson væru í virkilega vondum málum ef markaðurinn myndi meta gengi félagsins á sama hátt og gert var í hlutafjáraukningunni. Hannes Smárason hefur keypt bréf í FL Group fyrir 33,2 milljarða. Fyrstu kaupin hans voru fyrir 7,1 milljarða á genginu 9,6 þegar hlut hans og þáverandi tengdaföður hans, Jóns Helga Guðmundssonar einatt kenndum við Byko, var skipt upp. Dýrustu kaup hans voru nú í ágúst þegar hann keypti fyrir tvo milljarða á genginu 26,146. Ef Hannes seldi allt sitt á genginu 14,7 myndi hann fá 30,2 milljarða fyrir. Það myndi þýða að hann væri þrjá milljarða í mínus og er þá ótalinn fjármagnskostnaður vegna veðskulda. Gnúpur fjárfestingafélag, sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar (46,5%), Kristins Björnssonar (46,5%) og Þórðar Más Jóhannessonar (7%), kom inn í FL Group í ágúst á síðasta ári þegar þeir fengu bréf í félaginu í skiptum fyrir hlut þeirra í Straumi-Burðarási. Bréfin fengu Gnúpsmenn á genginu 18,52 að verðmæti 29,6 milljarða. Ef þeir myndi selja bréfin í dag á hlutafjáraukningagenginu 14,7 myndi þeir aðeins fá 23,5 milljarða sem þýðir að þeir yrði 6,1 milljarð í mínus. Materia Invest, sem er í jafnri eigu Magnúsar Ármanns, Þorsteins M. Jónssonar og Kevins Stanford, hefur keypt bréf í félaginu fyrir 18,3 milljarða síðan 10. ágúst 2005. Ef þessi bréf yrðu seld í dag á genginu 14,7 fengjust aðeins 15,6 milljarðar sem þýðir að þeir félagar væru 2,7 milljarða í mínus. Heimildir Vísis herma að Hannes og Materia Invest muni selja hluta af bréfum sínum á næstu dögum.
Mest lesið Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Neytendur Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Fleiri fréttir Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Sjá meira