Tveggja milljarða tap vegna AMR-bréfa bókfært á 4. ársfjórðungi 30. nóvember 2007 10:00 MYND/Vilhelm
FL Group hefur selt stærstan hluta eignar sinnar í AMR, móðurfélagi American Airlines, en hlutur félagsins í AMR hefur lækkað um 15 milljarða króna á árinu. FL Group segir að salan styrki stöðu sjóða FL Group um tíu milljarða.Hlutabréf í AMR hafa lækkað talsvert árinu og sendi Hannes Smárason, forstjóri FL Group, bréf til bandaríska félagsins í haust þar sem hann hvatti til skipulagsbreytinga, meðal annars með sölu vildarklúbbs félagsins. Það leiddi til þess að sögn FL Group að AMR ákvað að selja dótturfélag sitt American Eagle.FL Group segir lækkun á bréfum AMR fyrst og fremst skýrast af mikill hækkun olíuverðs og spám markaðsaðila um minni hagvöxt í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að jákvæð skrefi hafi verið stigin af hálfu AMR telur FL Group að of mikil óvissa ríki um breytingar hjá félagi og hvenær þeim yrði hrint í framkvæmd.Auk þess séu blikur á lofti um áframhaldandi hækkun olíuverðs og hugsanlegan samdrátt í bandarísku efnahagslífi. Í því ljósi var það ákvörðun félagsins að selja megnið af hlut sínum í AMR og skoða aðra fjárfestingakosti á markaði í kjölfarið, eins og segir í tilkynningu FL Group.Í lok þriðja ársfjórðungs var markaðsvirði hlutar FL Group í AMR um 31,2 milljarðar króna. Á árinu 2007 hefur eignin lækkað um 15 milljarða króna, þar af hafa um 13 milljarðar nú þegar verið gjaldfærðir á fyrstu níu mánuðum ársins. Tveir milljarðar verða gjaldfærðir á fjórða ársfjórðungi.FL Group átti 9,3 prósenta hlut í AMR fyrir söluna en á eftir sölu 1,1 prósent.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira