Karlarnir sækja í sig veðrið í Danmörku 21. nóvember 2007 15:23 Snorri Steinn Guðjónsson leikur með GOG í Danmörku
Danska handknattleikssambandið var mjög ánægt þegar nýjustu áhorfendatölur voru birtar í úrvalsdeildinni í handbolta þar í landi. Karlaboltinn er þar í góðri sókn og er farinn að ógna yfirburðum kvennaboltans undanfarin ár. Áhorfendafjöldi á leiki í karladeildinni hefur þannig aukist um 14% frá því á síðustu leiktíð og þar mæta 1329 manns á leik að meðaltali - upp frá 1169 á síðustu leiktíð. Konurnar trekkja þó enn talsvert fleiri áhorfendur á völlinn en karlarnir og þar hefur áhorfendafjöldi farið upp um eitt prósent frá því á síðustu leiktíð. 1436 manns mæta á leiki í kvennadeildinni að meðaltali á móti 1416 á síðustu leiktíð. Í karlaflokki eru það AaB (2492) og Skjern (2226) sem fá flesta áhorfendur að meðaltali, en í kvennaflokki trekkir Aalborg DH til sín 3501 áhorfanda að meðaltali á hvern leik. Mesta aukningin í áhorfendafjölda var hjá kvennaliði GOG þar sem meðalfjöldinn rauk úr 867 í fyrra upp í 1952 áhorfendur nú. "Það er mjög ánægjulegt að sjá hvað karlaboltinn hefur verið að sækja í sig veðrið undanfarið og það ber vott um það góða starf sem er verið að vinna í kring um klúbbana. Konurnar hafa jú verið einráðar hér í landi undanfarið, en það er mjög gott að sjá að þær eru enn að bæta við sig en ekki að standa í stað," sagði talsmaður danska handknattleikssambandsins.
Handbolti Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira