Hélt að Díana myndi lifa af Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 13. nóvember 2007 15:47 Díana prinsessa. Hér við jarðaför tískuhönnuðarins Gianni Versace. MYND/AFP
Fyrsti læknirinn sem kom að Díönu prinsessu eftir bílslysið í París sem kostaði hana og Dodi Al Fayed ástmann hennar lífið, segist hafa trúað því að hún myndi lifa slysið af. Frederic Mailliez sagði við réttarrannsóknina á dauða prinsessunnar af Wales að hún hefði "veinað, verið meðvitundarlaus og máttlítil," þegar hann kom að örfáum mínútum eftir slysið í Alma göngunum. Í vitnisburði læknisins kom einnig fram að hann hefði ekki vitað hver prinsessan var þar til næsta dag þegar hann sá sjónvarpsfréttir. Mailliez ók inn í göngin snemma morguns 31. ágúst 1997. Hann segist hafa hlaupið að bíl Díönu eftir að stöðva bifreið sína. Læknirinn sá samstundis að ökumaðurinn Henry Paul var látinn, eins og maðurinn í aftursætinu sem hann frétti seinna að hefði verið ástmaður Díönu. Konuna þekkti hann ekki. Mailliez sagðist prinsessuna hafa verið lifandi, hún hafi veinað, og andað en verið mjög máttfarin. "Ég man ekki eftir neinum sjáanlegum meiðslum á enni hennar. Ég man bara eftir nokkrum blóðdropum sem bentu ekki til alvarlegra meiðsla á því stigi. Richard Keen lögmaður fjölskyldu Henry Paul spurði lækninn hvort hann hefði munað eftir því að hafa sagt að konan myndi hafa það af. Mailliez svaraði, "Já, ég sagði það," en bætti við að hann hafi þá ekki vitað af alvarleika þeirra innvortis meiðsla sem prinsessan hlaut í árekstrinum.
Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira