Erlent

Sá mann í leyni á hóteli Madeleine

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar
Síðasta myndin sem tekin var af Madeleine áður en hún hvarf.
Síðasta myndin sem tekin var af Madeleine áður en hún hvarf. MYND/AFP
Barnfóstra sem gætti sex ára drengs í íbúð hótelsins sem fjölskylda Madeleine gisti í Praia da Luz segist hafa séð mann læðast í skjóli runna fyrir utan íbúðina á Ocean Club hótelinu. Barnfóstran sá manninn nokkrum mánuðum áður en McCann fjölskyldan kom til Praia da Luz, en framburður hennar styður frásögn vinar fjölskyldunnar sem segist hafa séð einhvern bera Madeleine sofandi frá hótelinu.

Barnfóstran segist einnig hafa séð mann sem faldi sig í skuggum hótelsins sama dag og Madeleine hvarf.

Clarence Mitchell talsmaður Kate og Gerry McCann sagði í gær að þau væru afar þakklát fyrir framburð barnfóstrunnar. Vitnisburðurinn staðfesti það sem hjónin hefðu ávallt haldið fram, að Madeleine hefði verið rænt úr rúmi sínu.

Barnfóstran sem hefur aðeins verið nafngreind sem M.H. sagði bresku lögreglunni frá þessu stuttu eftir að leitin að stúlkunni hófst í maí, en talaði ekki við lögregluyfirvöld í Portúgal.

Sá manninn þegar hún leitaði að rottumBarnfóstran hringdi í símaþjónustu sem sett var upp á Spáni í síðustu viku í tengslum við rannsókn málsins. Hún sagðist hafa fengið símtal frá yfirmanni sínum þegar hún gætti drengsins á meðan foreldrar hans spiluðu tennis. Hann hafi varaði hana við rottum á hótelinu.

Barnfóstran kíkti þá út um gluggann og taldi sig sjá rottu sem reyndist karlmannsfótur. Hún öskraði upp yfir sig og þá hljóp maðurinn í burtu. Hún lýsir manninum sem 25-35 ára þarlendum karlmanni. Hann hafi verið í ljósum buxum og bláköflóttri skyrtu.

Spænska dagblaðið El Mundo segir stúlkuna hafa sagt yfirmanni sínum frá atvikinu, en hann hafi haft meiri áhyggjur af rottunum.

Lögreglan hefur kvartað yfir því hversu margir komu í íbúð McCann hjónanna þegar hvarf hennar uppgötvaðist. Það hafi gert rannsókn lögreglunnar erfiða þar sem sönnunargögn gætu hafa spillst.

Fjölskylduvinur lýsti einnig vanþóknun sinni á aðferðum portúgölsku lögreglunnar í breska blaðinu Sun. Lögreglumenn hefðu reykt og skilið eftir sig sígarettustubba um allt og keyrt lögreglubíla til og frá staðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×