Íslenski boltinn

Ólafur: Öll þjóðin heldur með Fjölni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, með bikarinn góða.
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, með bikarinn góða. Mynd/E. Stefán

Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, segir að pressan verði á sínum mönnum í bikarúslitaleiknum gegn Fjölni um helgina.

„Ég tel engan vafa á því að Fjölnismenn geti mætt afslappaðri í þennan leik,“ sagði Ólafur við Vísi. „Öll þjóðin heldur með Fjölni og er það ekkert óeðlilegt. Það verður auðveldara að rífa Fjölnismenn upp fyrir leikinn en nokkurn tímann okkur.“

FH spilaði síðast til úrslita bikarkeppninnar árið 2003 en hefur þó aldrei náð að hampa bikarnum eftirsótta.

Liðið varð Íslandsmeistari þrívegis, á árunum 2004-2006, en missti naumlega af titlinum á lokaspretti mótsins í ár.

Langþráða tvennan verður því ekki unnin af FH-ingum í ár.

„Ég hef sagt það áður að miðað við að við höfum verið taldir meðal bestu liða landsins hefur verið ansi fúlt að komast aldrei í úrslitaleikinn. En leikurinn leggst afar vel í mig og fögnum við því að fá að taka þátt í honum nú.“

Hann segir að það ef FH vinni á laugardaginn mun það ekkert skyggja á sigurinn að liðið varð ekki einnig Íslandsmeistari.

„Við erum búnir að afgreiða Íslandsmótið okkar á milli og nú er það bara þessi keppni sem gildir. Það kemur ekki eitt í staðinn fyrir annað.“

Ólafur segir að Fjölnisliðið er gott en það lék sem kunnugt er í fyrstu deildinni í sumar og lenti þar í þriðja sæti.

„Fjölnir hefur spilað mjög vel í sumar og er með fljóta leikmenn sem og hóp  leikmanna sem hafa reynslu úr úrvalsdeildinni. Þetta er fín samsetning á liði.“

Hann segir þó að undirbúningur sinna manna verður með hefðbundnu sniði.

„Við komum með að spila okkar bolta eins og alltaf.“ 


Tengdar fréttir

Vísir hitar upp fyrir bikarúrslitin

Á laugardaginn mætast lið FH og Fjölnir í bikarúrslitaleik karla. Vísir mun næstu daga fjalla ítarlega um leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×