Ekki vitað til þess að Íslendingar hafi verið í strætisvögnum 27. febrúar 2007 12:00
Að minnsta kosti sex létust þegar tveir strætisvagnar á leið í gagnstæða átt rákust saman rétt utan við borgina Uppsali í Svíþjóð í morgun. Á fimmta tug til viðbótar slösuðust, þar af nokkrir alvarlega. Ekki er vitað til þess að Íslendingar hafi verið á ferð með strætisvögnunum. Slysið varð á áttunda tímanum í morgun nærri Lejsta, sem er um 20 kílómetra norð-austur af Uppsölum. Strætisvagnarnir voru báðir fullir af fólki. Þrír eru sagðir í lífshættu og sjö alvarlega slasaðir. 30 til 40 til viðbótar hlutu minni áverka. 10 sjúkrabílar frá öllum nærliggjandi borgum voru kallaðir á vettvang. Erfiðlega gekk að komast að slösuðum í strætisvögnunum þar sem þeir fóru afara illa í árekstrinum og sem dæmi rifnaði nær öll önnur hliðin af örðum þeirra. Þeir höfnuðu báðir utan vegar. Þyrlur fluttu þá sem verst voru slasaðir á Háskólasjúkrahúsið í Uppsölum. Vitni að slysinu fengu þegar áfallahjálp, sem og þeir sem slösuðust lítillega. Séra Ágúst Einarsson, prestur Íslensku kirkjunnar í Svíþjóð, sagði í samtali við fréttastofu í morgun að hann hefði ekki frétt af því að nokkurn Íslending hefði sakað í slysinu en fjölmargir Íslendingar eru búsettir á svæðinu. Ekki er vitað með vissu hvað olli slysinu en töluverð hálka var á veginum. Honum var þegar lokað.
Erlent Fréttir Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Innlent Fleiri fréttir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjóræningjar tóku tyrkneskt hergagnaskip Rúmenar grönduðu drónabát nærri borpalli Hælisleitendum kennt að það sé bannað að berja konur og nauðga Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“ Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Hætta við að bjarga gammablossasjónauka Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Hópur tengdur rétttrúnaðarkirkjunni reyndi að komast til áhrifa í Danska þjóðarflokkinum Hótar þeim hörmungum sem eiga í viðskiptum við Íran Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Sjá meira