Tapið fyrir Íslandi eins og köld sturta 23. janúar 2007 15:23 Frakkar voru niðurlútir eftir tapið í gær AFP
Franskir miðlar fara hörðum orðum um frammistöðu Frakka í landsleiknum gegn Íslendingum á heimsmeistaramótinu í handknattleik í gær. Þar segir að fall Evrópumeistaranna hafi verið hátt enda tapaði liðið með átta mörkum fyrir Íslandi. Frakkarnir hafi einfaldlega verið of sigurvissir eftir stórsigra á Áströlum og Úkraínumönnum. Vefmiðillinn Sport birtir umsögn undir fyrirsögninni „Kaldur skellur fyrir þá bláklæddu". Þar segir að segir að öflugt íslenskt landslið hafi yfirspilað það franska og því fari það síðarnefnda í milliriðla án stiga. „Héldu þeir að þetta yrði auðvelt?" spyr greinarhöfundur og minnir á að Íslendingar hafi verið að spila fyrir áframhaldandi þátttöku sinni í keppninni. Greinarhöfundur segir markmenn liðsins hafa verið fjarverandi og sóknarleikinn óþekkjanlegan. Haft er eftir Claude Onesta, þjálfara franska liðsins, í franska stórblaðinu Le Monde að bjartsýninin í liðinu sé hreinlega of mikil. „Þegar ég reyndi að segja þeim að þeir væru ekki heimsmeistarar hafði ég á tilfinningunni að ég væri að hrópa í eyðimörkinni," sagði Onesta eftir leikinn. Í franska íþróttablaðinu L´Equipe er svo haft eftir Jerome Fernandez, stórskyttu franska liðsins, að liðið hafi byrjað hörmulega í leiknum, bæði í vörn og sókn og hafi verið í stanslausum eltingarleik vegna þess það sem eftir var leiksins. „Við reyndum að nýta hæfileika okkar sem einstaklingar en það gekk ekki í dag. Við lærðum dýrmæta lexíu á þessu," sagði Fernandez, en blaðið sagði tap Frakka hafa verið eins og kalda sturtu frá 'Islendingum.
Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira