Umfjöllun RÚV um Jónínu Bjartmarz alvarlegt brot á siðareglum 19. júní 2007 19:05
Siðanefnd Blaðamannafélags Íslands hefur kveðið upp þann úrskurð að Ríkisútvarpið og fréttamaður þess, Helgi Seljan, hafi brotið alvarlega gegn siðareglum blaðamanna með umfjöllun sinni um Jónínu Bjartmarz, þáverandi umhverfisráðherra, og um veitingu ríkisborgararéttar til sambýliskonu sonar hennar.Málið kom upp í lok aprílmánaðar, aðeins hálfum mánuði fyrir þingkosningar, og varð áberandi í kosningabaráttunni. Jónína Bjartmarz kærði umfjöllun Ríkissjónvarpsins um málið, bæði Kastljóss sem og fréttastofu sjónvarps. Siðanefnd Blaðamannafélagsins hefur nú úrskurðað að alvarlega hafi verið brotið gegn siðareglum félagsins. Umfjöllunin hafi verið röng og misvísandi og til þess fallin að gera kæranda tortryggilegan.Greinilega megi sjá að ekki hefur verið aflað nægilegra upplýsinga til að gefa rétta mynd af málinu. Fréttamaðurinn virðist ekki hafa kynnt sér hvernig með umsóknir um ríkisfang sé farið. Rangfærslurnar hafi verið leiðréttar smám saman en lituðu engu að síður alla umfjöllunina. Látið hafi verið undir höfuð leggjast að afla grundvallarupplýsinga í viðkvæmu máli. Þau vinnubrögð brjóti í bága við þá grein siðareglna Blaðamannafélagsins þar sem segi: "Blaðamaður vandar upplýsingaöflun sína, úrvinnslu og framsetningu svo sem kostur er og sýnir fyllstu tillitssemi í vandasömum málum. Hann forðast allt sem valdið getur saklausu fólki, eða fólki sem á um sárt að binda, óþarfa sársauka eða vanvirðu."
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Innlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Erlent Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Innlent „Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Læsi, ESB-leynimakk, Landeyjahöfn og húsnæðismál Innlent Fleiri fréttir Á þriðja hundrað manns æfði viðbrögð við flugslysi „Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ Læsi, ESB-leynimakk, Landeyjahöfn og húsnæðismál Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Sjá meira