Lyklaskipti í ráðuneytum 24. maí 2007 15:17 MYND/Stöð 2
Nýir ráðherrar úr Samfylkingunni og Sjálfstæðisflokknum eru þessa stundina að taka við lyklavöldum í sínum ráðuneytum úr hendi forvera sinna. Þannig tók Ingibjörg Sólrún Gísladóttir við lyklinum að utanríkisráðuneytinu úr hendi Valgerðar Sverrisdóttur, fráfarandi utanríkisráðherra, nú á fjórða tímanum. Sagði Ingibjörg Sólrún um leið og hún tók við hamingjuóskum frá Valgerði að hún tæki við góðu búi. Sams konar athafnir fara fram í ráðuneytum iðnaðarmála, umhverfismála, samgöngumála, heilbrigðismála, félagsmála, landbúnaðar og viðskipta. Einar Kristinn Guðfinnsson tók við lyklum að landbúnaðarráðuneytinu úr höndum Guðna Ágústssonar sem gegnt hefur starfi landbúnaðarráðherra í átta ár. Einar verður með þessu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þá tó Björgvin G. Sigurðsson við lyklavöldum í viðskiptaráðuneytinu af Jóni Sigurðssyni og sama gerði Össur Skarphéðinsson í iðnaðarráðuneytinu. Þeir Björgvin og Össur deila fyrst um sinn skrifstofum því iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið hefur heyrt undir einn mann í allmörg ár. Enn fremur tók Kristján L. Möller við lyklavöldum í samgönguráðuneytinu og þá sneri Jóhanna Sigurðardóttir aftur í félagsmálaráðuneytið og tók við stjórnartaumunum af Magnúsi Stefánssyni. Þórunn Sveinbjarnardóttir tók svo við lyklum að umhverfisráðuneytinu úr höndum Jónínu Bjartmarz en lyklarnir eru kippu með rjúpnakló sem Össur Skarphéðinsson lét búa til fyrir 13 árum. Í heilbrigðisráðuneytinu tók Guðlaugur Þór Þórðarson svo við lyklunum af Siv Friðleifsdóttur, en Guðlaugur er eini nýi ráðherra Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórninni.
Mest lesið Icelandair enn og aftur í vandræðum Innlent Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Innlent Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Innlent Borgarstjóri kom af fjöllum Innlent Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs Innlent Fleiri fréttir Bríet krefur Pálma Ragnar um átta milljónir króna Lögreglumenn „búnir að fá sig fullsadda“ af nagladekkjanotkun Vaknaði óttasleginn með sex ósvöruð símtöl frá Matthíasi og þrjár milljónir á reikningnum Icelandair enn og aftur í vandræðum Ofbeldi og gervigreind ekki vænlegt til árangurs „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Sjá meira