Nú eru fimm leikir hafnir á HM í handbolta og staðan í þeim öllum eftir bókinni. Pólverjar hafa tveggja marka forystu á Brasilíumenn í C-riðli 15-13 þegar flautað hefur verið til hálfleiks en Pólverjar hófu leikinn mun betur en Brassar klóruðu í bakkann fyrir hálfleik.
Spánverjar eru að rúlla Katörum upp í fyrri leik dagsins D-riðli og er staðan 17-6 fyrir Spánverjum nú þegar um 20 mínútur eru liðnar af leiknum. Þá eru Túnisar að vinna Grænlendinga í A-riðli og Rússar eru yfir gegn Marakkómönnum í F-riðli en sá leikur fer mjög rólega af stað.
Í riðli Íslendinga er hafinn leikur Frakka og Ástrala og skoruðu Frakkar fyrstu átta mörkin í leiknum sem stendur 9-1 fyrir Frökkum eftir 10 mínútna leik.
Hægt er að fylgjast með gangi mála beint á síðu IHF.
Staðan eftir bókinni

Mest lesið


Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“
Íslenski boltinn


Neymar hlustaði á hjartað sitt
Fótbolti





