Marel vill borga, Stork ekki 21. febrúar 2007 06:00 kynningarfundur hjá Mare.l Fjárfestar og starfsmenn greiningardeilda voru meðal þeirra sem sóttu kynningarfund Marels fyrir helgi, en hann var haldinn í tengslum við ársuppgjör félagsins. MYND/GVA
Óli Kristján Ármannsson skrifar Óformlegar viðræður Marels og Stork-fyrirtækjasamstæðunnar í Hollandi hafa haldið áfram. Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel, greindi frá því á fundi fyrir fjárfesta fyrir helgi að Stork hefði ítrekað áhuga sinn á að kaupa Marel. Viðræðurnar hafa ekki verið færðar á formlegt plan, enda á stjórn Stork í slag um stefnu við stærstu hluthafa félagsins. Viðskiptadómstóll í Hollandi skipaði í janúar sérstaka tilsjónarmenn sem leiða eiga deiluna til lykta á næstu fimm mánuðum. Árni Oddur segir að þótt hreyft hafi verið við hugmyndum um að Stork N.V. kaupi Marel horfi dálítið öðruvísi við áhugi Marels á að kaupa Stork Food Systems, sem er matvælavinnsluvélahluti samstæðunnar. „Munurinn á okkur og þeim er að þeir eru ekki tilbúnir að borga fyrir Marel á meðan við erum tilbúnir að borga fyrir Stork,“ segir Árni Oddur og telur 50 prósent yfir núverandi markaðsvirði bréfa Stork ekki of hátt verð fyrir fyrirtækið. Hann segir að samlegðaráhrif starfsemi fyrirtækjanna réttlæti verðið. Árni Oddur áréttar að gott samstarf Marel og Stork Foods, sem staðið hafi í átta ár haldi áfram og hafi sjaldan verið betra á sölu- og markaðssviði, þótt ef til vill hafi aðeins dregið úr því á sviði rannsókna- og þróunar. Marel hefur kosið að standa fyrir utan deilur stærstu hluthafanna í Stork, bandarísku fjárfestingasjóðanna Centaurus og Paulson, við stjórn félagsins og benti Árni Oddur á að lítið mál hefði verið að keyra upp einskiptiskostnað félagsins á síðasta ári með því að hella sér í slaginn. „Sjóðirnir eru hins vegar á fullu í þessu með her lögfræðingar, enda snýst málið orðið um virðingu þeirra og þeir ætla að hafa betur.“ Hann segir hins vegar lausnina á deilunni liggja í augum uppi. „Hún er náttúrlega að selja Stork Foods til Marel og láta rannsóknina sem hafin er niður falla,“ segir hann glaðhlakkalega, en er ekkert mjög bjartsýnn á að sú leið verði farin miðað við þann hnút sem deilan er komin í. Slagurinn hófst í október þegar samþykkt var á sérstökum hluthafafundi að selja jaðarstarfsemi frá Stork, en þar undir fellur Stork Foods. Stjórn fyrirtækisins hafði álit meirihluta hluthafa að engu. Bandarísku sjóðirnir gerðu þá tilraun til að koma stjórninni frá, en málið endaði á borði viðskiptadómstóls í Amsterdam sem skipaði í janúar sérstaka tilsjónarmenn í stjórn Stork til að leiða deiluna til lykta á hálfu ári.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira