Burt með kvóta á innfluttar landbúnaðarvörur 18. október 2007 18:45
Innflytjendur á ostum eru ósáttir við landbúnaðarráðherra og segja allt of skammt gengið í breytingum á tollkvótum fyrir innfluttar landbúnaðarvörur. Breytingarnar eiga að tryggja að innflytjendur geti ekki boðið í kvóta til þess eins að halda honum frá samkeppnisaðilum. Innflytjendur á erlendum gæðaostum segja að kvóti sé úrelt aðferð til að stýra neyslu og hann bitni bara á neytendum. Kerfið sem viðhaft hefur verið hér á landi við innflutning á landbúnaðarvörum hefur tryggt að ríkið hefur alltaf fengið hæsta mögulega verð fyrir hvert kíló. Útboð hefur verið haldið á innflutningskvóta fyrir innfluttar landbúnaðarvörur og þeir sem hafa boðið hæst hafa fengið að flytja inn slíkar vörur. Rúnar Gíslason, einn afkastamesti ostainnflytjandi landsins og matreiðslumeistari hjá Kokkunum veisluþjónustu, segir að þetta sé ekki eini gallinn við kerfið. Nokkrir innflytjendur á ostum sögðu í vor að tilboðsgjafar gætu haldið kvóta í gíslingu með háum tilboðum í hann sem þeir síðan sinntu engu að sækja eða greiða fyrir. Þannig ýttu þeir frá sér samkeppni með því að hindra þá að nálgast kvóta sem ætluðu sér sannarlega að flytja inn landbúnaðarvörur og koma þeim á markaðinn. Í vor bauð fyrirtæki 207 milljónir króna í kvóta en innleysti hann ekki. Rúnar segir að svona nokkuð hafi verið gjörsamlega ófært. Landbúnaðarráðuneytið ætlar nú að bregðast við þessu með því að tilboðsgjafar verði að ábyrgjast að þeir geti staðið við tilboðið. Þeir þurfa líka að leysa kvótann til sín með greiðslu innan sjö daga frá því að niðurstaða útboðs er ljós. Rúnar Gíslason, ostainnflytjandi, segir að þetta sé vissulega bót. Hann vill samt kvótann sjálfan út í hafsauga og er ekki sáttur við við Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra. Rúnar vonast til að landbúnaðarráðherra breyti þessu á næstu mánuðum og leggi kvótann niður.
Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira