Pirrandi hvað ég fæ fá tækifæri Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 17. september 2007 13:38 Einar Hólmgeirsson hefur lítið fengið að spila með Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni. Mynd/Pjetur
Einar Hólmgeirsson viriðst ekki mörg tækifæri fá hjá Kent-Harry Andersson, þjálfara Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Hann gekk til liðs við félagið í sumar og segist vera pirraður vegna stöðu sinnar í liðinu. "Ég hef líklega fengið að spila í um 10-20 mínútur það sem af er tímabilinu," sagði Einar í samtali við Vísi. "Þegar ég kom til félagsins hélt ég að ég fengi að spila meira. Ég hef rætt þetta mál við þjálfarann og hann segir að ég sé ekki tilbúinn." Einar gefur lítið fyrir þær skýringar en hann segist vera orðinn heill af meiðslum sínum frá síðasta tímabili. "Það hefur lítið komið úr mínum samtölum við þjálfarann. Það er mín tilfinning að hann vilji bara nota Alex meira. Hann virðist ofar í goggunarröðinni eins og er." Alexander Petersson kom einnig til félagsins í sumar en báðir léku þeir með Grosswallstadt á síðasta tímabili. "Ég er rólegur eins og er en ef þetta fer ekki að lagast fer ég kannski að hugsa minn gang. Ég er tilbúinn að gefa þessu nokkra mánuði en það er samt ljóst að ég kemst ekki í leikæfingu ef ég fæ ekkert að spila." Framundan eru margir stórleikir hjá Flensburg, bæði gegn Kiel og Hamburg í þýsku úrvalsdeildinni og gegn Ólafi Stefánssyni og félögum í Ciudad Real í Meistaradeildinni. "Ég býst nú ekki við því að fá að spila mikið þá þar sem ég hef lítið fengið að spila gegn lélegari liðum deildarinnar. En það eru margir leikir framundan og þetta verður að fá að hafa sinn gang."
Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Sammála mati Finns: „Börn eiga að fá að vera börn“ Körfubolti Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Skotflaug Húta setti strik í reikninginn hjá Ronaldo Fótbolti Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Enski boltinn Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Fótbolti Fleiri fréttir Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sjá meira