Skipti hf. fær frest á skráningu framyfir áramót 16. nóvember 2007 16:01
Árni Mathiesen fjármálaráðherra segir að ráðuneytið muni taka jákvætt í beiðni Skipti hf., móðurfélags Símans, um að fresta skráningu félagsins í kauphöllina. Verður ákvörðunin um það tekin öðru hvorum megin við helgina. Samkvæmt samningi sem gerður var þegar Síminn var seldur á sínum tíma áttu 30 prósent af hlutafénu að fara á almennan markað. „Kauphöllin hefur sagt að vegna óvissu um kaup Skipta á slóvenska símanum sé betra að fresta skráningunni og við teljum sjálfsagt að taka tillit til þessa," segir Árni í samtali við Vísi. Fram kemur í máli fjármálaráðherra að ekki verði gefinn langur frestur til að koma málinu á hreint. Skipti hf. muni í mesta lagi hafa tvo til þrjá mánuði frá áramótum til að skrá félagið í kauphöllina og uppfylla skilyrði samningsins um að almennum fjárfestum verði gert kleift að kaupa 30 prósent af hlutafénu. Í tilkynningu sem var að berast frá fjármálaráðuneytinu segir að fallist sé á beiðni Skipti hf. og skuli skráningu vera lokið fyrir marslok 2008 í stað ársloka 2007 eins og kveðið var á um í samningi Skipta ehf. og íslenska ríkisins frá 5. ágúst 2005. "Ákvörðun fjármálaráðherra byggir á því að þátttaka Skipta hf. í söluferli slóvenska símafélagsins, Telekom Slovenije, geri það að verkum að ekki sé eins og sakir standa unnt að uppfylla þau skilyrði sem lög setja um að lýsing skuli innihalda þær upplýsingar sem með hliðsjón af eðli útgefandans og verðbréfanna séu nauðsynlegar fjárfestum til þess að þeir geti metið eignir og skuldir, fjárhagsstöðu, afkomu og framtíðarhorfur útgefanda sem og þau réttindi sem fylgja verðbréfunum," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira