Handbolti

Ísland burstaði Evrópumeistara Frakka

Íslenska landsliðið í handknattleik vann í kvöld frábæran 32-24 sigur á Evrópumeisturum Frakka í lokaleik sínum í B-riðli. Íslenska liðið hafði yfirburði allan leikinn og sýndi einhvern besta leik sinn á síðustu árum. Liðið fer því áfram í milliriðil með tvö stig í farteskinu ásamt Frökkum, sem hafa ekkert stig.

Ólafur Stefánsson skoraði 6 mörk, Guðjón Valur og Logi 5, Snorri Steinn 4, Markús Máni 3, Alexander 3, Ásgeir Örn 2, Sigfús Sig 2, og Ragnar Óskars og Vignir Svavars 1. Þá var Birkir Ívar Guðmundsson var frábær í íslenska markinu.

Íslenska liðið mætir Túnis í fyrsta leik í milliriðli á miðvikudag, þá Pólverjum á fimmtudag, Slóveníu á laugardag og Þýskalandi á sunnudag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×