Forsætis- og umhverfisráðherra ósammála Heimir Már Pétursson skrifar 7. nóvember 2007 18:43
Forsætisráðherra og umhverfisráðherra eru á öndverðum meiði varðandi hvort Íslendingar eigi að sækjast eftir sérákvæði í samningum um endurnýjun Kyoto samkomlagsins. Bæði eru þó sammála um að mikilvægast sé að fá stærstu mengunarþjóðirnar inn í samninginn. Valgerður Sverrisdóttir þingmaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi utanríkis- og iðnaðarráðherra, spurði forsætisráðherra á Alþingi í dag, hvort ríkisstjórnin stefndi að því að reyna að ná samningi um nýtt íslenskt ákvæði í þeim viðræðum sem framundan eru um framhald Kyoto samningsins. En samkvæmt núgildandi samkomulagi fá smærri hagkerfi, eins og Ísland, rýmri heimildir til losunar gróðurhúsalofttegunda en samkomulagið gerir almennt ráð fyrir. Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði það sína skoðun að Íslendingar ættu að sækja að nýju um "íslenskt ákvæði". En mest um vert væri að fá stóru mengunarþjóðirnar, Bandaríkin, Brasilíu og fleiri að samningaborðinu. Valgerður fagnaði þessu svari forsætisráðherra, enda fæli þetta ákvæði í sér viðurkenningu á framlagi Íslands til málsins á heimsvísu þar sem Íslendingar notuðu endurnýjanlega orku. Kristinn H Gunnarsson Frjálslynda flokki tók í svipaðan streng. Valgerður benti hins vegar á að ósamræmis gætti í yfirlýsingum forsætisráðherra og Þórunnar Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra, sem ekki vildi sækja um sérákvæði fyrir Ísland. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingmaður Vinstri grænna sagðist algerlega gáttuð á yfirlýsingu forsætisráðherra og það yrði Íslendingum til skammar að sækja á ný um sérákvæði. Umhverfisráðherra segir að forsætisráðherra hefði lýst persónulegri skoðun sinni en jafnframt tekið fram að samningsmarkmið Íslendinga hefðu ekki verið ákveðin. Innan ríkisstjórnarinnar væru allir sammála um að ná þeim markmiðum að draga úr útblæstri um 50 - 75 prósent fyrir miðja öldina. Hún væri enn þeirrar skoðunar að ekki ætti að sækja um sérákvæði fyrir Ísland. Stefna ríkisstjórnarinnar fæli ekki í sér að hún hefði dregið í land með þá skoðun sína.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira