Skipt um forstjóra Icelandair Óli Kristján Ármannsson skrifar 14. desember 2007 06:00 Forstjórar í tékklandi Jón Karl Ólafsson, fráfarandi forstjóri Icelandair og Icelandair Group, ásamt forstjóra Travel Service í Tékklandi. Fréttablaðið/ÓKÁ
Jón Karl Ólafsson lætur af störfum bæði sem forstjóri Icelandair Group og dótturfélagsins Icelandair. Við starfi forstjóra Icelandair Group tekur, samkvæmt heimildum blaðsins, Björgólfur Jóhannsson, en hann hefur til þessa gegnt starfi forstjóra matvælafyrirtækisins Icelandic Group sem starfar í sjávarútvegi. Áður gegndi Björgólfur starfi forstjóra Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, auk þess sem hann er stjórnarformaður Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Ekki hefur verið ráðið í starf forstjóra dótturfélagsins Icelandair. Ástæða starfsloka Jóns Karls er rakin til ákvörðunar sem tekin var hjá félaginu í sumar um að skipta forstjórastarfinu í tvennt, þar sem einn væri settur yfir móðurfélagið og annar yfir dótturfélagið Icelandair. Þannig hafi Jón Karl leitt félagið í gegn um umbreytinga- og vaxtaferli, en nú hafi menn orðið ásáttir um að leiðir skildu. Á þessu ári hafa verið nokkrar hræringar í eignarhaldi Icelandair Group, en rétt tæpt ár er síðan félagið var skráð á markað í Kauphöll Íslands. Forsvarsmenn Icelandair vildu í gær ekki tjá sig um þróun mála. Þá náðist ekki í Jón Karl, sem sagður er vera í útlöndum. Samkvæmt heimildum blaðsins var í gær unnið að gerð tilkynninga til Kauphallar um mannabreytingar bæði hjá Icelandair Group og Icelandic Group.
Mest lesið Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Oft slegist um innstungurnar á tjaldsvæðunum Neytendur Fleiri fréttir Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Ná að spara hver mánaðarmót en hvað svo? Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Arctic Fish fær heimild til frekara fiskeldis Falið að leiða þjónustu og upplifun hjá Mílu Segja lækkun á olíu ekki hafa skilað sér til íslenskra neytenda Einföldun að segja að íslensk ferðaþjónusta sé láglaunagrein „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Stýrivextir líklegast ekki lækkaðir aftur á þessu ári Verðbólgan úr 3,8 prósentum í 4,2 prósent Alltof margir sem sitja eftir með sárt ennið Sjá meira