Hlutafé aukið um 64 milljarða í FL Group 4. desember 2007 16:45 Hlutafé í FL Group verður aukið um 64 milljarða.
Hlutafé í FL Group verður aukið um 64 milljarða og eigið fé félagsins verður 180 milljarðar eftir hlutafjáraukningu í félaginu sem samþykkt var í dag. FL Group kaupir hlut í öflugum fasteignafélögum fyrir 53,8 milljarða króna en allar eignirnar eru keyptar af Baugi Group. Félagið eykur hlut sinn í norræna fasteignafélaginu Landic Property úr 2,9% í 39,8%, kaupir 32,3% hlut í Fasteignafélagi Íslands, 49,7% hlut í Þyrpingu, 22,7% hlut í Eik fasteignafélagi og kaupir eignarhluti í alþjóðlegum fasteignasjóðum af Baugi Group. "Kaupin eru í samræmi við yfirlýsta fjárfestingastefnu félagsins um að auka vægi Private Equity í sínu eignasafni og sjáum við mikil tækifæri í frekari uppbyggingu þessara félaga. Þau skapa einnig gott mótvægi við fjárfestingar okkar í öðrum atvinnugreinum," segir Jón Sigurðsson, nýráðinn forstjóri FL Group. Í tengslum við fjármögnun kaupanna, verður gefið út nýtt hlutafé að nafnvirði 3.659 milljónir í FL Group á genginu 14,7 til að fjármagna 53,8 milljarða kaupverð. Hlutirnir verða gefnir út til Baugs Group í skiptum fyrir umræddar eignir. Kaupin eru með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki hluthafafundar, sem verður boðaður í desember 2007. Samhliða þessu hefur FL Group ákveðið að bjóða út nýtt hlutafé að markaðsvirði tíu milljarðar króna til fagfjárfesta á genginu 14,7. Baugur Group hefur skuldbundið sig til þess að selja allt að fimm milljarða króna að markaðsvirði í tengslum við fagfjárfestaútboðið til þess að mæta hugsanlegri umframeftirspurn á sama verði. Heildarupphæð hlutafjárútboðsins verður því allt að 15 milljarðar króna og mun Kaupþing banki hafa umsjón með því.
Tengdar fréttir Stórir hluthafar í FL Group falla frá forkaupsrétti Stærstu hluthafar FL Group og stjórn funduðu langt fram á nótt í húsi lögmannsstofunnar Logos í Efstaleiti. Hvorki Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður félagsins, eða Hannes Smárason forstjóri vildu tjá sig við Vísi að loknum fundinum. 4. desember 2007 07:49 Hlutur Hannesar í FL Group þynnist um 7% Hannes Smárason er ekki lengur stærsti hluthafi FL Group. Með nýju útgefnu hlutafé upp á 64 milljarða hefur Baugur Group tekið við þeirri stöðu og fer nú með 35,9% hlut í félaginu. hlutur Hannesar fer úr 20,52% í 13,7%. 4. desember 2007 17:31 Viðskipti stöðvuð með hlutafé FL Group Samkvæmt fréttabréfinu TravelPeople er Hannes Smárason hættur sem forstjóri FL Group. Samkvæmt tilkynningu kauphallarinnar hafa viðskipti með hlutafé FL Group verið stöðvuð og að frétt sé væntanleg. 4. desember 2007 08:31 Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira
Stórir hluthafar í FL Group falla frá forkaupsrétti Stærstu hluthafar FL Group og stjórn funduðu langt fram á nótt í húsi lögmannsstofunnar Logos í Efstaleiti. Hvorki Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður félagsins, eða Hannes Smárason forstjóri vildu tjá sig við Vísi að loknum fundinum. 4. desember 2007 07:49
Hlutur Hannesar í FL Group þynnist um 7% Hannes Smárason er ekki lengur stærsti hluthafi FL Group. Með nýju útgefnu hlutafé upp á 64 milljarða hefur Baugur Group tekið við þeirri stöðu og fer nú með 35,9% hlut í félaginu. hlutur Hannesar fer úr 20,52% í 13,7%. 4. desember 2007 17:31
Viðskipti stöðvuð með hlutafé FL Group Samkvæmt fréttabréfinu TravelPeople er Hannes Smárason hættur sem forstjóri FL Group. Samkvæmt tilkynningu kauphallarinnar hafa viðskipti með hlutafé FL Group verið stöðvuð og að frétt sé væntanleg. 4. desember 2007 08:31