Handbolti

Sverre Jakobsson: Hugurinn við þriðjudaginn

Sverre Jakobsson spilaði varnarleikinn í dag en tók þó óneitanlega örlítið minna á því en venjulega.
Sverre Jakobsson spilaði varnarleikinn í dag en tók þó óneitanlega örlítið minna á því en venjulega. MYND/Getty

 “Hugurinn var svolítið við þriðjudaginn. Það er ekki hægt að neita því. Aðalatriðið var að hafa gaman af þessu og sleppa við meiðsli,” sagði Sverre Andreas Jakobsson eftir tapið gegn Þýskalandi í dag, þó brosmildur sem fyrr.

“Menn lögðu sig kannski ekki 100% fram en þetta var líka æfingaleikur fyrir þriðjudaginn. Það er sá leikur sem skiptir öllu máli. Niðurlæging var aldrei í myndinni og gott að hafa afstýrt því.”




Fleiri fréttir

Sjá meira


×