Öryggismiðstöðin hefur sett á markað þjónustu undir nafninu „Heimaöryggi eldri borgara“ og á hún að stórauka öryggi eldri borgara heima. Þjónustan er þrískipt.
Hún gengur út á það að eldri borgarar beri neyðarhnapp um úlnliðinn auk þess sem hreyfiskynjari lætur vita ef ekki greinist hreyfing heima hjá viðkomandi í ákveðinn tíma og reykskynjari sem tengist stjórn stöð Öryggismiðstövarinnar lætur vita ef kviknar í.
Að uppfylltum vissum skilyrðum kemur Tryggingastofnun ríkisins til móts við hluta kostnaðar sem hlýst af þessari nýju þjónustu.