Héraðsdómur ógildir ákvörðun Kauphallar Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. desember 2007 06:00 Jukka Ruuska, yfirmaður OMX Nordic Exchange, og Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX Kauphallar Íslands. Áminning og fjársekt sem Kauphöll Íslands beitti Atorku Group var í gær felld úr gildi með dómi. Fréttablaðið/Vilhelm
Héraðsdómur hefur fellt úr gildi ákvörðun Kauphallarinnar frá því í fyrrahaust um að áminna Atorku Group og sekta um 2,5 milljónir króna. Kauphöllin á að birta dóminn í fréttaveitu sinni, eða sæta dagsektum ella. Kauphöllin birti dóminn þegar í gær, en hefur, að sögn forstjóra hennar, ekki ákveðið hvort dómnum verður áfrýjað. Ákvörðun Kauphallar Íslands um að áminna og beita Atorku Group fjársekt upp á 2,5 milljónir króna 2. október í fyrra var ekki réttum grunni byggð. Atorka sætti sig ekki við úrskurð Kauphallarinnar og vísaði málinu til dómstóla. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu féll í gær. „Við förum rækilega yfir þetta mál með lögfræðingum okkar,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar og býst við að fljótlega liggi fyrir ákvörðun um hvort áfrýjað verði til Hæstaréttar. Að mati Kauphallarinnar var misræmi milli fyrirsagnar og meginefnis fréttatilkynningar um afkomu Atorku Group sem birt var í fréttaveitu Kauphallarinnar í ágústlok í fyrra. Upp hófust þá bréfaskriftir og fundahöld milli Kauphallar og Atorku sem enduðu með því að leiðrétt tilkynning var birt 26. september 2006. Kauphöllin taldi hana þó enn ekki fullnægjandi og því var tekin ákvörðunin um áminningu og sekt. Héraðsdómur bendir á að tilkynningin umdeilda hafi verið í samræmi við tilkynningu Atorku um uppgjör fyrsta ársfjórðungs, sem þó hafði verði birt athugasemdalaust. Í fyrirsögn tilkynningarinnar um hálfsársuppgjörið var hins vegar dreginn fram hagnaður móðurfélags Atorku, en ekki samstæðu félagsins. Dómurinn bendir hins vegar á að lykiltölur úr samstæðureikningnum hafi komið fram í tilkynningunni og verið framarlega. Þannig segir dómurinn að þótt mikil áhersla hafi verið lögð á afkomu móðurfélags Atorku í leiðréttri tilkynningu sé ekki hægt að að fallast á með Kauphöllinni að þar hafi nær eingöngu verið veittar upplýsingar um niðurstöðu reikningsskila móðurfélagsins. „Upplýstum lesanda tilkynningar stefnanda [Atorku] 26. september 2006 mátti vera afkoma samstæðunnar ljós,“ segir dómurinn og bendir jafnframt á að ekki hafi verið gerðar neinar athugasemdir við reikningsskil Atorku Group. „Að því er varðar fyrirsögn tilkynningarinnar frá 26. september 2006 þá er orðalag ákvæðis 2.1.6, að í fyrirsögn skuli koma fram efni tilkynningar, til þess fallið að gefa útgefendum ákveðið svigrúm, enda hefur sú verið raunin í tilkynningum útgefenda í Kauphöll Íslands að þeir reyna að draga fram jákvæða þætti í uppgjörum sínum í fyrirsögn,“ segir jafnframt í dómnum. Auk þess að fella ákvörðun Kauphallarinnar úr gildi og dæma hana til að bera 600 þúsund króna málskostnað þá er Kauphöllinni gert að birta dóminn í fréttakerfi hennar með sama hætti og gert var með áminningu Atorku. Þetta ákvæði dómsins uppfyllti Kauphöll Íslands þegar klukkan þrjú í gærdag, jafnvel þótt ekki hafi verið tekin ákvörðun um áfrýjun. Dóminn kváðu upp Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari og meðdómsmennirnir Árni Harðarson lögmaður og Knútur Þórhallsson, löggiltur endurskoðandi.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira