Peningastefna Seðlabanka tekin að bíta Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. nóvember 2007 02:45 Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, er í forgrunni en svo koma forstöðumenn greiningardeilda, Ásgeir Jónsson hjá Kaupþingi, Ingólfur Bender hjá Glitni og Björn Rúnar Guðmundsson hjá Landsbankanum. Markaðurinn/Anton
Stýrivaxtahækkun Seðlabankans upp á 45 prósentustig kom greiningardeildum bankanna á óvart. Þær hafa nú endurskoðað hagspár sínar í ljósi breyttra aðstæðna. Kaupþing telur von á meiri hækkun vaxta á aukavaxtaákvörðunardegi Seðlabankans 20. desember næstkomandi. En greiningardeildir Glitnis og Landsbankans telja vexti ekki munu hækka meira, þótt Glitnir telji ekki hægt að útiloka frekari hækkun. Allir segja bankarnir ljóst að stýrivextir verði hærri næstu misseri en spáð hefur verið. Kaupþing segir kjarasamninga og nýja stóriðju verða til þess að Seðlabankinn hækki stýrivexti um 50 punkta til viðbótar í desember. „Þannig mun bankinn leggja síðbúna 95 refsipunkta á efnahagslífið í þessari stuttu vaxtahækkunarlotu,“ segir í spá bankans. Vísað er til þess að „gífurlegur“ þrýstingur sé á launahækkanir meðal almennra félagsmanna í verkalýðsfélögum. „Afkoma ríkisins er betri en áður var talið sem eykur svigrúm þess til aðgerða sem liðka til fyrir samningum en skapa um leið þenslu. Aukinheldur er líklegt að brátt verði tilkynnt um frekari stóriðjuframkvæmdir sem mun færa verðbólguspár Seðlabankans til verri vegar,“ segir í spánni. Björn Rúnar Guðmundsson, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segist telja að á næsta ári skapist tiltölulega hratt forsendur fyrir vaxtalækkun. „Við spáum lækkandi verði á fasteignamarkaði á næsta ári,“ segir hann og kveður stýrivaxtahækkun Seðlabankans nú ýta undir þá þróun og flýta því ferli sem Landsbankinn hafi spáð á fasteignamarkaði, enda óhagstæðara að taka lán en áður. „Að þessu leytinu er peningastefnan farin að virka og þar með teljum við að svigrúmið til að gefa aðeins eftir sé til staðar. En þetta breytir því hins vegar ekki að við horfum á meiri kraft í hagkerfinu en Seðlabankinn reiknar með. Það gerir að verkum að við förum í okkar spá ekki jafnlangt, eða hratt, niður og þeir gera í sinni spá.“ Greiningardeildirnar segja hærri stýrivexti ýta undir hærra gengi krónunnar til skemmri tíma, en á móti komi þar viðvarandi órói á erlendum fjármálamörkuðum. Í spá Glitnis er þannig talið að krónan gefi ekki eftir fyrr en um miðbik næsta árs og að í lok næsta árs verði gengisvísitalan í 122 stigum, evra í 91 krónu og Bandaríkjadalur í 64 krónum. „Við gerum svo ráð fyrir hægfara styrkingu krónu á árinu 2009. Þar munu togast á lækkandi vextir, þótt við teljum að þeir verði enn fremur háir, og svo hins vegar að næsta hagvaxtarskeið verður skammt undan, og þar með væntingar um að vextir taki að hækka að nýju í upphafi næsta áratugar.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Sjá meira