Juan Garcia í nærmynd 19. janúar 2007 14:15 AFP
Eftir að hafa borið víurnar í hann í mörg ár, tókst stórliðinu Barcelona loksins að lokka hinn eldfljóta hornamann Juan Garcia til sín þegar hann gekk til liðs við þá frá heimaliðinu Ademar Leon árið 2005. Garcia var lykilmaður í meistaraliði Ademar Leon sem skaut stórliðunum ref fyrir rass tímabilið 2000-2001 og hefur í mörg ár verið lykilmaður í spænska landsliðinu, þar á meðal því sem tryggði sér heimsmeistaratitilinn fyrir tveimur árum. Juan Garcia, sem lék sinn fyrsta leik í spænsku deildinni aðeins 17 ára gamall, er hornamaður af gamla skólanum; góður í uppspilinu í sóknarleiknum og ógnarfljótur í hraðaupphlaupum þar sem hann getur stungið flesta aðra af. Árið 2004 var Garcia valinn besti handboltamaður heims og sama ár var hann valinn besti vinstri hornamaðurinn bæði í spænsku deildinni og á Ólympíuleiknum í Aþenu. Ásamt hægri hornamanninum Albert Rocas lék Garcia geysimikilvægt hlutverk þegar Spánverjum tókst árið 2005 loksins að tryggja sér gullverðlaun á stórmóti. Garcia er einnig afar örugg vítaskytta og hefur sem slíkur skorað mörg ómetanleg mörk fyrir bæði landslið sitt og félagslið.Staða: Vinstra hornFæddur: 28 ágúst 1977 í Leon á SpániFélagslið: Barcelona á Spáni
Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira