Lífið

Vilhjálmur prins huggar Kate

Kate Middleton, fyrrverandi unnusta Vilhjálms Bretaprins, hefur mátt þola erfiða viku eftir að þau Vilhjálmur slitu samvistum. Stuðningur almennings hefur hjálpað henni síðustu daga.
Kate Middleton, fyrrverandi unnusta Vilhjálms Bretaprins, hefur mátt þola erfiða viku eftir að þau Vilhjálmur slitu samvistum. Stuðningur almennings hefur hjálpað henni síðustu daga. MYND/GettyImages
Vilhjálmur Bretaprins og Kate Middleton, fyrrverandi kærasta hans, hafa verið í stöðugu símasambandi síðan upp úr sambandi þeirra slitnaði á dögunum. Vilhjálmur hefur huggað Kate eftir árásir í bresku pressunni.

Vika er nú liðin síðan tilkynnt var um sambandsslit Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton. Breskir fjölmiðlar hafa verið undirlagðir af fréttum um þau skötuhjúin. Til að mynda hafa nokkur dagblöð birt leiðinlegan rógburð um fjölskyldu Kate og hefur það lagst þungt á hana.

Af þessum sökum hefur Vilhjálmur verið í stöðugu símasambandi við fyrrverandi unnustu sína. Hann dvelst nú á herstöð í Dorset þar sem hann er í þjálfun.

Vilhjálmur Bretaprins.
„Þau eru enn mjög náin. Sumt af því sem sagt hefur verið um móður Kate hefur verið mjög særandi og langt yfir strikið. Vilhjálmur hefur hringt nokkrum sinnum í Kate og hún í hann. Hann segist styðja hana fullkomlega, hann er viss um að sumt af því sem skrifað hefur verið er algjör vitleysa. Skrifin hafa sært Kate og Vilhjálmur er heldur ekki sáttur,“ segir heimildarmaður The Sun innan konungsfjölskyldunnar.

„Þau eru kannski hætt saman en þau hafa verið náin svo lengi að þau munu ekkert hætta að tala saman,“ segir heimildar­maðurinn enn fremur.

Kate hafa borist hundruð bréfa með stuðningsyfirlýsingum frá almenningi. Vinir hennar segja að þessi stuðningur hafi hjálpað henni mikið, svo mikið að hún lét sig hafa það að skella sér út á lífið með vinkonum sínum á föstudagskvöld. 



„Þessi viðbrögð almennings hafa sannarlega hjálpað. Það hefði verið auðvelt fyrir hana að fara til útlanda til að losna undan álaginu en stuðningurinn sannfærði hana um að vera kyrr,“ sagði vinkona Kate Middleton.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×