Ný jólakort frá Fuglavernd 30. nóvember 2006 18:00
Fuglaverndarfélag Íslands hefur gefið út tvö ný jóla- og tækifæriskort með ljósmyndum eftir þá Daníel Bergmann og Jóhann Óla Hilmarsson. Þeir félagar eru báðir landskunnir fuglaljósmyndarar og félagar í Fuglavernd. Myndirnar á kortunum eru af auðnutittlingi á snævi þakinni jörð og blesgæsum á flugi í Andakíl, með Skessuhorn í vetrarskrúða í baksýn. Blesgæsin var einmitt friðuð s.l. sumar að frumkvæði Fuglaverndar og þótti við hæfi að hún prýddi annað kortanna. Kortin eru vönduð að allri gerð, 12x17 cm að stærð og prentuð hjá Grafík/Gutenberg. Hægt er að skoða kortin og eldri kort á vefnum fuglavernd.is. Kortin er hægt að panta á vef Fuglaverndar og fá póstsend. Þau er einnig hægt að kaupa á skrifstofu Fuglaverndar að Skúlatúni 6, sími 562 0477 og er hún opin miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga á milli 10-17. Auk þess eru kortin seld í afgreiðslu Náttúrufræðistofnunar á Hlemmi. Verðið er 200 kr. stykkið sem lækkar í 150 kr. ef keypt eru fleiri en 20 eintök. Einnig er töluvert til af eldri kortum sem skoða má á vefnum og er verðið á þeim 150 kr. Undanfarin ár hafa komið út kort með fullt af spennandi fuglum, líkt og skógarþresti, branduglu, silkitoppu og snjótittlingum, svo eitthvað sé nefnt. Kortin eru augnakonfekt og það er engin verðbólga hjá Fuglavernd því verðið hefur staðið í stað um árabil. Kortaútgáfan er ein af fjáröflunarleiðum Fuglaverndar.
Lífið Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Hall og Oates ná sáttum Lífið Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira