Tónlist

Bætist við dagskrá Iceland Airwaves

Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, sem fram fer í miðborg Reykjavíkur daganna 18-22 október, er óðum að taka á sig mynd.

Þegar er búið að tilkynna um 70 listamenn og hljómsveitir sem koma munu fram á hátíðinni og nú eru kynntir til leiks tæplega 30 flytjendur til viðbótar. Má þar nefna í bandarísku indí rokksveitina We are Scientists, norsku rafrokkarana í Datarock og nýjustu hljómsveit Kings of Convenience hetjunnar Erlend Øye, The Whitest Boy Alive.

Tvær síðastnefndu sveitarinnar spila á hátíðinni undir formerkunum 'Hear Norway at Iceland Airwaves' sem er samvinnuverkefni Hr. Örlygs, Icelandair og Norska menningar- og kirkjumálaráðuneytisins.

Um hljómsveitirnar:

Eftir að hafa gefið út tvær breiðskífur á eigin vegum fékk New York sveitin We are Scientists loks plötusamning hjá plöturisanum EMI/Virgin í fyrra og afraksturinn, breiðskífan With Love and Squalor, hefur gengið vel í tónlistarspekúlanta víða um heim. Sveitin hefur farið mikinn í ár - m.a. trúrað með Arctic Monkeys, Maximo Park og Mystery Jets - og er á leið í heljarinnar tónleikaferð um Bretland eftir stopp þeirra á Iceland Airwaves. Erlend Øye, sem gerði garðinn frægan með Kings of Convenience og sögspýra fyrir Royksopp í lögunum 'Remind Me' og 'Poor Leno', auk þess að hafa sett saman eitt rosalegasta DJ sett sögunar í safnplötuseríunni DJ Kicks, er fluttur til Berlínar þar sem hann er búin að stofna hljómsveitina The Whitest Boy Alive. Hún er nýbúin að gefa út plötuna Dreams og hlakkar þeim félögum mikið til að kynna hana á Iceland Airwaves 2006.

Líkt og Erlend og félagar hans í Kings of Convenience kemur Datarock frá Bergen. Hér er á ferðinni eitt skemmtilegasta fyrirbæri sem norsk popptónlist hefur alið af sér enda hefur frumburður sveitarinnar 'Datarock Datarock' fengið frábæra dóma innan sem utan Noregs. Tónlist sveitarinnar hefur verið líkt við verk Devo, Talking Heads og Happy Mondays. Þeir verða í feikna stuði á Airwaves, sem og bandaríska elektró tríóið Walter Meego sem kemur frá Chicago. Walter Meego hefur deilt sviði með listamönnum á borð við Cut Copy, Hard-Fi, Hot Chip, DJ Vadim og Tom Vek, nýjasta EP plata þeirra lagðist vel í hippstera Lundúna og var vinsælasta 'import platan' í Rough Trade verslununum í fyrra og eru þeir með breiðskífu í vinnslu. New York dúóðið The Handsome Public verða eitt aðalnúmerið á opnunarkvöldi hátíðarinnar, en frumburður þeirra, 'Caged Heat EP', kemur út um svipað leiti og Airwaves. Í kjölfar framkomu þeirra á hátíðinni hyggja þeir síðan á tónleikaferð um Evrópu.

Meðal þeirra innlendu listamanna sem nú bætast við daskrá Airwaves er hip hop sveitin Original Melody, pönkbandið Æla sem var nýlega að gefa út sína fyrstu breiðskífu, retro-latin-surf-soul-powerpop nýliðarnir í Retro Stefsson [mynd] og Hafdís Huld sem mun í október senda frá sér sína fyrstu sóló breiðskífu; Dirty Paper Cups. Einnig eru nokkrir plötusnúðar komnir inn á dagkrá hátíðarinnar og má þar nefna teknó kólfinn Exos, diskóboltann Dj Margeir Breakbeat.is fastanúðana alræmdu DJ Kalla, DJ Leopold og Ewok og hinn íslensk ættaði ameríkani DJ Platurn sem m.a. hefur troðið upp með Mixmaster Mike, Afrikaa Baambaata og Rob Swift.
Erlendir listamenn sem nú bætast við dagskrána eru Datarock (NO), Handsome Public (US), Walter Meego (US), We are Scientists (US) og The Whitest Boy Alive (NO/DE).

Innlendir listamenn sem nú bætast við dagskrána eru, Cynic Guru, Dýrðin, Hafdís Huld, Morðingjarnir, Nine Elevens, Nortón, Our Live, Original Melody, Retro Stefson, Ultra Mega Technobandið Stefán, The Zuckakis Mondeyano Project Coctail Vomit og Æla.

Plötusnúðar sem nú bætast við dagskrána
Alfons X, Ewok, Exos, DJ Kalli, DJ Leopold, DJ Óli Ofur, Margeir og DJ Platurn (US).

Frekari upplýsingar um alla þessa listamenn, tilvísarnir í vefsíður o.fl. er að finna á icelandairwaves.com.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×