Nýtt handverk á gömlum merg 27. júní 2006 15:00
Sendiráð Íslands og Danmerkur munu opna handverkssýninguna Transform - Nýtt handverk á gömlum merg þann 29. júní n.k. í sendiráði Norðurlandanna í Berlín. Þar sýnir handverksfólk og hönnuðir frá vestnorrænu löndunum þremur, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi, handverk, listmuni og hönnun sem er nútímaleg en stendur þó föstum fótum í handverkshefðum landanna þriggja. Sýningin er farandsýning og var upphaflega opnuð á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn í maí 2005 en hefur síðan verið sett upp á Álandseyjum, í Færeyjum og í Eistlandi og síðast var hún í Norræna húsinu í Reykjavík. Sýningin í Berlín stendur til til júlíloka en eftir það er áformað að flytja hana til Grænlands. Frá Færeyjum koma sjö textíllistamenn. Þeir vinna úr færeyskri ull og nýta sér þá margvíslegu möguleika sem hráefnið hefur. Frá Grænlandi koma tólf lista- og handverksmenn. Þeir sýna stóra og litla skúlptúra, tupilakka, hnífa og muni úr beini, steini og skinni. Íslensku þátttakendurnir eru sextán og koma frá Gullsmíðafélagi Íslands og sýna þeir skartgripi úr gulli og silfri og verður áherslan á hinu hefðbundna íslenska víravirki. Á sýningunni er megináherslan á nútíma gæðahandverk en einnig eru sýndir listmunir og vinnuaðferðir frá nítjándu og tuttugustu öld auk þess sem hráefnið sem notað er, ull, steinn og bein og gull og silfur, er kynnt . Gamlar vinnuaðferðir þjóðanna verða sýndar af myndbandi og því hægt að bera þær saman við nútímaaðferðir. Vestnorrænu löndin þrjú, Ísland, Grænland og Færeyjarnar eru fátæk af hráefnum og náttúruöflin eru oft á tíðum óblíð. Handverk landanna ber þess merki að til að komast af þurfti hugmyndaflug, nýtni og útsjónarsemi. Munirnir á handverkssýningunni bera þess vitni að þó efniviðurinn sé fábreyttur getur útkoman verið ríkuleg. Færeyjar draga nafn sitt af fé og er það lýsandi fyrir mikilvægi ullarinnar sem oft hefur verið kölluð gull eyjanna. Ullin skiptist í gróft tog, sem notað var í þráð og grófari flíkur, og fínt þel, sem gott var í sokka, nærklæði og ýmsar spariflíkur. Færeyskt fé er litríkt og fyrr á öldum voru einnig notaðir heimagerðir litir úr mosa og skófum en á 18. öld hófst innflutningur á lit. Færeyskir nútímahönnuðir nota ull, skinn og önnur efni, sem þeir blanda saman við á hugvitsamlegan hátt, og eru óhræddir að gera tilraunir og reyna að finna nýja notkunarmöguleika fyrir gull eyjanna. Hefðbundið grænlenskt handverk sameinar list og notagildi. Skrautið á þjóðbúningnum, munstrin á grímunum og táknin á veiðarfærunum; allt hafði þetta sína þýðingu í veiðisamfélögum inútíta, sem var jafn óaðskiljanlegt frá gripnum og sjálft notagildið. Skreytingin fékk merkingu í gripnum og trúnni á að andi hennar hefði tilgang, sem yki notagildið. Þó mikil breyting hafi orðið með menntun grænlenskra listamanna og aukinni eftirspurn og markaði fyrir grænlenska handverksmuni, sem hafa einungis fagurfræðilegt gildi, þá er enn að finna merki um hina fornu handverkshefð Grænlendinga í nútímahandverki. Víravirki eru gerð úr silfurþráðum og er ein elsta gerð íslenskrar silfursmíði sem þekkt er og hefur þessi aðferð verið notuð frá miðöldum. Áður fyrr var aðferðin mest notuð til skreytinga á húsgögnum og kirkjumunum en á 18. og 19. var íslenska kvenbúningnum breytt og hið svokallaða kvensilfur kom til sögunnar. Þetta voru m.a. beltissylgjur, skreyttir hnappar og nælur sem gerðar voru úr víravirki. Á sýningunni má sjá hvernig íslenskir gullsmiðir reyna að nota íslensku víravirkishefðina til að gera nútímalega skartgripi. Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður hannaði sýninguna og þriggja manna nefnd valdi sýningarmunina en í henni sátu Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur frá Íslandi og myndlistarmennirnir Thue Christiansen frá Grænlandi og Bárður Jakupsen frá Færeyjum. Verkefnisstjóri sýningarinnar er Reynir Adólfsson en þetta er í þriðja sinn sem hann stendur fyrir vestnorrænni handverkssýningu, fyrri sýningarnar voru sýningarnar Vestnorden Arts and Crafts 2002 og 2004 sem fram fóru á Íslandi og hægt er að kynna sér á vefnum www.vestnordencrafts.com.
Lífið Menning Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira