Fékk innblástur við lestur Einkamál.is 14. ágúst 2006 12:45 Kynlíf og ofbeldi Groddarastíll Tarantino fær að njóta sín í verkinu Kjöt sem er frumsýnt á ArtFart hátíðinni í kvöld.
Í gamla Ó. Johnsson og Kaaber húsinu skapar hópurinn Brite Theater heim þar sem kynlíf er hluti af samfélagsskyldum hvers og eins. Hugmyndin að baki verkinu er meðal annars það sem margir segja um að ástin sé vinna. Mér datt í hug að taka þetta konsept enn lengra og gera ástina í alvörunni að vinnu, segir Kolbrún Björt Sigfúsdóttir leikstjóri verksins sem hefur fengið heitið Kjöt. Í heiminum sem verkið gerist í er kynlífið hluti af samfélagsskyldu hvers og eins, rétt eins og að borga skatta, og þarf að skila ákveðið mörgum tímum af kynlífi á viku til að komast hjá sektum. Þetta er ráð ríkisstjórnarinnar gegn offitu og þunglyndi. Ef fólk fær nóg að ríða eru allir hamingjusamir, segir Kolbrún og bætir við að það sé að minnsta kosti hugmyndin að baki verkinu. Kjöt er frumraun Kolbrúnar sem leikstjóri en hún hefur unnið í hópnum Rannsóknarsvið íslenskrar þjóðmenningar í skapandi sumarstarfi Hins hússins. Handritið að verkinu vann Kolbrún í sumar og sótti innblástur í vefsíðuna Einkamál.is og atvinnuauglýsingar. Mig langaði svolítið að blanda saman þessu atvinnutungumáli og hösslinu og komst að því að það er í rauninni mjög líkt. Ásamt textanum eru hreyfingar og dans notaður til tjáningarinnar og studdist hópurinn við brasilísku bardagaíþróttina Capoeira í hreyfingasmíðunum. Kolbrún segir að tjáningarmáti leikhópsins sé í stíl við groddarhátt Tarantinos. Þetta er auðvitað um kynlíf og tilvísanir í það eru áberandi. Síðan erum við með mikið af bardagasenum þar sem Capoeira kemur inn og sviðsslagsmál. Aðspurð um hvort markhópur sýningarinnar sé fólk á öllum aldri segir Kolbrún að ung börn eigi ekki erindi á hana. Við mælum kannski ekki með að börn yngri en tólf ára komi á sýninguna nema í fylgd með fullorðnum. Það er samt engin nekt í leikritinu en erum aftur á móti með mikið af vísunum í kynlíf. Svo eru nokkur bardagaatriði sem eru kannski dálítið brútal, segir Kolbrún. Verkið var frumsýnt í gærkvöld á ArtFart hátíðinni. Í vikunni verða svo tvær sýningar ásamt lokasýningum á menningarnótt.
Menning Mest lesið „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ Lífið Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Lífið Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Lífið Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri Lífið Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Lífið Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Lífið Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Lífið Ný vörulína lagar litabletti í húð Lífið samstarf Seiðandi glæsikvendi á lausu Lífið Fleiri fréttir Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Mikið fjör á opnun kosningaskrifstofu Gnarr Sjarmerandi og seiðandi á sjötugsaldri „Kveiktum næstum í öllu sumarbústaðalandinu“ „Nútíminn er trunta“ Sagan á bak við djarft listaverk Ásdísar Ránar Rithöfundurinn Paul Auster er látinn „Eurovision mamman“ með gleði og kærleika að vopni Múgur og margmenni fylgdust með ótrúlegu ostakúluáti „Hin raunverulegu stólaskipti fóru fram í dag“ Óstundvísi Steina sögð kosta tugi milljóna dollara Gerða og glæsilegar gellur á Edition Swing og hópkynlíf fyrir byrjendur! Snorri og Harpa selja á Njálsgötu Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Una Torfa negldi slagara með Fleetwood Mac Maikai-hjónin eignuðust stúlku Bitcoin fjárfestar gerðu sér glaðan dag í Grósku Hvernig á að kenna hundi að rekja spor og slaka á Disneydraumurinn varð loks að veruleika Aðalsöngvari The Commitments stígur á svið í Háskólabíói Langþráður draumur Völu Eiríks rættist Álfa- og jólahúsið í Laugardalnum heyrir sögunni til Draumur Katrínar Eddu og Markúsar verður að veruleika Trítaði sig og fékk sér Teslu: „Hvað ertu með í laun eiginlega?“ Hönnunarhæð Karinar í Nola til sölu Sjá meira