Íslendingar mættu ofjörlum sínum 27. ágúst 2006 10:30 gangan langa Þóra B. Helgadóttir mátti gera sér að góðu að sækja boltann í markið fjórum sinnum í gær sem var allt of mikið. MYND/Vilhelm
fótbolti Kvennalandslið Íslands tók í gær á móti Svíum og varð að sætta sig við 0-4 tap. Svíar hafa á að skipa einu besta landsliði heims og þær sýndu oft á tíðum góða takta. Íslenska liðið lék vel fyrstu 60 mínútur leiksins í gær, þó sérstaklega varnarlega, voru þéttar fyrir en töluvert bit vantaði í sóknarleikinn. Ísland lék í gær leikaðferðina 4-5-1 og greinilegt var að liðið ætlaði að halda þeim sænsku í skefjum. Fyrsta færið kom á 13. mínútu þegar brotið var á sóknarmanni Svía inni í teig og vítaspyrna dæmd. Vítið tók fyrirliði liðsins, Malin Moström, og skoraði af öryggi. Íslensku stelpurnar voru þó ekki af baki dottnar og héldu áfram að stríða þeim sænsku. Vörnin stóð fyrir sínu en sóknarleikurinn var ekki alveg nógu góður, Margrét Lára fékk oft á tíðum lítinn stuðning og of langt bil var á milli miðju og sóknar. Staðan 0-1 í hálfleik og Ísland síst lakari aðilinn. Það sama var uppi á teningnum í upphafi síðari hálfleiks en á 62. mínútu skoraði Sara Thunebro annað mark Svía og eftir það var íslenska liðið eins og sprungin blaðra. Markið kom gegn gangi leiksins og hafði greinilega mikil áhrif á íslensku stelpurnar. Á 80. mínútu kom sending inn á teig Íslands og þar var það Victoria Svensson sem skoraði og kom Svíum í 0-3. Fjórum mínútum fyrir leikslok kom svo fjórða og síðasta mark leiksins þegar Hanna Ljungberg skoraði sitt 67. landsliðsmark í 117 leikjum. Leik íslenska liðsins er hægt að skipta í tvennt, fyrstu 60 mínúturnar og síðustu 30 mínúturnar. Fyrsta klukkutímann var liðið vel á tánum og spilaði mjög góðan varnarleik en síðasta hálftímann gekk ekkert upp, liðið virkaði þreytt og sóknirnar voru hægar. Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði liðsins, gekk ekki heil til skógar og það sást greinilega á hennar leik. Hún komst aldrei í takt við leikinn, var hæg og átti fáar sendingar sem rötuðu rétta leið. Ef Ísland á að geta staðið í liði af svipuðum styrkleika og Svíþjóð þá verður leikmaður eins og Ásthildur að eiga góðan leik. Edda Garðarsdóttir var best íslensku leikmannanna, leysti stöðu afturliggjandi miðjumanns mjög vel af hólmi. Einnig áttu þær Guðrún Sóley Gunnarsdóttir og Erna B. Sigurðardóttir góðan leik í vörninni. Þóra B. Helgadóttir átti góðan fyrri hálfleik en gerði sig oft seka um klaufaleg mistök í þeim síðari. Sænska liðið er vel mannað og oft var mjög gaman að horfa á þær spila en munurinn á þessum liðum liggur einmitt í því að þær sænsku búa yfir mun meiri sendingagetu en þær íslensku. Of oft voru mikilvægar og einfaldar sendingar að klikka hjá íslensku stelpunum. En eins og áður sagði var varnarleikurinn góður fyrsta klukkutímann og um að gera að taka það góða frá þessum leik og byggja ofan á það.
Íþróttir Mest lesið „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna Handbolti „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti „Miklu betra lið en Króatía“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Sport Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Enski boltinn Fleiri fréttir Fram sótti sigur fyrir norðan og ÍR endaði langa taphrinu Logi skoraði sjálfsmark í sigri Slóvenar unnu upp fjögurra marka forskot Ungverja og fögnuðu sigri Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Í beinni: Arsenal - Manchester United | Stórveldi slást um stigin þrjú Aston Villa lifði af orrahríð fyrir norðan og náði Manchester City Myndasyrpa: Tryllt Íslendingapartý í Malmö Heiðdís leggur skóna á hilluna Með hendur fyrir aftan bak í fimm hundruð metra hæð Hlín utan hóps er Lehmann kom að marki í fyrsta leik Svíþjóð - Ísland | Allt undir á útivelli Estevao með mark og stoðsendingu gegn lánlausu Palace liði Ásdís Karen lagði upp í öruggum sigri gegn botnliðinu „Vantar meiri leiðindi og fávitaskap frá okkur“ „Miklu betra lið en Króatía“ Norðmenn með flautuna í Malmö „Hann er örugglega góður pabbi“ Guðmundur Leó bætti annað mótsmet Sjáðu alla dramatíkina úr enska boltanum Djokovic fær frípassa í átta manna úrslit Rose hengdur upp í rjáfur í Chicago „Markvörðurinn þarf stundum að kveikja í vörninni“ „Gífurlega tilfinningaþrungið“ fyrir sænsku stjörnuna „Eitt besta lið í heimi“ Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Sú besta í heimi er ólétt Dagskráin: Barist um sæti í Super Bowl og stórleikur Arsenal og Man Utd Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Sjá meira