Viðskipti innlent

Skjálfti skekur hlutabréfamarkaði

Eggert Þór Aðalsteinsson

skrifar

Hlutabréf féllu alls staðar í verði við opnun markaða á þriðjudaginn eftir töluverðar lækkanir á bandarískum hlutabréfamarkaði á mánudaginn. Almennt dró úr lækkunum þegar leið á daginn. Ótti fjárfesta við að seðlabankar Bandaríkjanna og Bretlands muni hækka vexti frekar, til að hemja vaxandi verðbólgu, er talin meginorsök þessarar lækkunarhrinu. Hlutabréf í Ástralíu og Japan féllu um mesta stigafjölda frá því í september árið 2001 og hlutabréfavísitölur á nýmörkuðum í Indlandi, Rússlandi og Tyrklandi fóru í lægstu gildi í meira en hálft ár. Norrænu hlutabréfavísitölurnar gáfu verulega eftir, sem og hrávörumarkaðir, sem féllu af ótta við að vaxtahækkanir dragi úr hagvexti og eftirspurn. Gull, kopar og olía lækkuðu í verði.

Úrvalsvísitalan féll skarpt strax eftir opnun Kauphallarinnar og einnig veiktist krónan nokkuð. Hafði vísitalan lækkað um tæp þrjú prósent um hádegisbil, um 160 stig. Um tvöleytið höfðu hlutabréf í Bakkavör, Dagsbrún og FL Group lækkað vel yfir fjögur prósent.

Jónas Gauti Friðþjófsson, sérfræðingur á Greiningu Glitnis, tínir til nokkrar ástæður sem geti skýrt lækkanir á innlendum hlutabréfamarkaði. Hann nefnir að fjárfestar séu óvissir um hvort botninum sé náð og haldi því að sér höndum. Hækkandi vaxtastig bæði innan- og utanlands geri fjármögnunarkostnað fyrirtækjanna dýrari og geri aðra fjárfestingarkosti meira spennandi en hlutabréf, til dæmis markaðsreikninga sem beri háa vexti.

"Þá hefur lækkandi verð á erlendum hlutabréfamörkuðum einnig áhrif. Erlendar eignir íslenskra félaga lækka í verði og við það myndast neikvæður gengismunur." Þá nefnir Jónas að stemningin á hlutabréfamarkaði hafi verið neikvæð að undanförnu vegna neikvæðra frétta. "Þetta veldur óvissu, sem er eitur í beinum hlutabréfafjárfesta."

Greining Glitnis telur að markaðurinn sé nærri botninum og því séu góð tækifæri fyrir þolinmóða langtímafjárfesta. Þótt Úrvalsvísitalan hafi lækkað mikið megi ekki oftúlka þróunina, enda sé hvorki gríðarleg velta né mikill fjöldi viðskipta á bak við lækkun gærdagsins.

Úrvalsvísitalan stóð í 5.420 stigum um miðjan dag í gær og hafði því lækkað um 2,1 prósent frá áramótum og um 21,7 prósent frá því hún náði hæsta gildi frá upphafi hinn 15. febrúar. Af þeim fjórtán félögum sem mynda Úrvalsvísitöluna um þessar mundir hafa aðeins þrjú hækkað frá áramótum en það eru Actavis (26,5%), Straumur-Burðarás (7,6%) og Marel (5,7%). Glitnir banki stóð í því gengi sem hann var um áramót en önnur félög höfðu lækkað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×