Erlent

Dæmdur fyrir fjöldamorð

Edgar Ray Killen, fyrrverandi meðlimur kynþáttahaturssamtakanna Ku Klux Klan, var í gær dæmdur í sextíu ára langt fangelsi fyrir að hafa skipulagt morð á þremur baráttumönnum fyrir réttindum svartra fyrir meira en fjörutíu árum. Killen, sem nú er orðinn áttræður, var keyrður inn í dómshúsið í hjólastól og tók örlögum sínum með ró en virtist ekki sýna eftirsjá. Dómarinn Marcus Gordon sagði við dómsuppkvaðninguna að flestum þætti nú sem svo að tíu ára fangelsi jafngilti lífstíðarfangelsi fyrir Killen en þrátt fyrir það yrði hann að taka tillit til alvarleika brotanna. Þar með lýkur einum hrikalegasta kafla í sögu réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum. Morðin sem framin voru árið 1964 vöktu þá mikinn óhug meðal bandarísku þjóðarinnar og urðu söguefni kvikmyndarinnar Missisippi Burning árið 1988. Mennirnir þrír sem voru myrtir voru barðir til dauða á hrottafenginn hátt og grafnir í stíflu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×