Fækkun herliðs boðuð 11. apríl 2005 00:01
Bandarísk stjórnvöld vonast til að geta kallað allt að þriðjungi herliðs síns heim frá Írak snemma á næsta ári. Ástæðan er að sögn bandaríska dagblaðsins The New York Times batnandi öryggisástand í landinu og styrking íraskra lögreglu- og hersveita. Á síðustu vikum hefur árásum á erlenda hermenn í Írak fækkað verulega. Í aðdraganda kosninganna 30. janúar voru slíkar árásir um 140 á dag en nú eru þær 30-40. 36 bandarískir hermenn féllu í skæruárásum í síðasta mánuði en svo fáir hermenn hafa ekki týnt lífi síðan í febrúar 2004. Bandarískir og íraskir ráðamenn eru sammála um að janúarkosningarnar og orrustan um Fallujah í nóvember séu orsök batnandi ástands, en Fallujah var helsta vígi uppreisnarmanna. Á sama tíma hefur gengið vel að byggja upp íraskar öryggissveitir. Að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytisins hafa 152.000 Írakar verið þjálfaðir í hermennsku og löggæslustörfum undanfarin misseri. Af þessum sökum vonast stjórnvöld í Washington til að snemma á næsta ári verði fjöldi bandarískra hermanna í Írak 105.000 í samanburði við 142.000 nú, það er að segja ef ástandið heldur áfram að batna.
Erlent Fréttir Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Fleiri fréttir Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Sjá meira