Rover-veldið rústir einar 11. apríl 2005 00:01
Þessi hundrað ára bílaframleiðandi er nú í skiptameðferð sem er eitt form gjaldþrots, þar sem þriðji aðili, sem skipaður er af dómstólum, stjórnar fyrirtækinu, eins og Patricia Hewitt, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Bretlands, greindi frá á blaðamannafundi á fimmtudaginn. "MG Rover hefur tilkynnt að stjórn fyrirtækisins hafi ákveðið að kalla inn skiptastjóra. Þetta er hrikalegt áfall fyrir alla sem tengjast fyrirtækinu -- starfsmenn og fjölskyldur þeirra, birgja fyrirtækisins og samfélagið í heild," sagði Hewitt á fundinum. Til skiptameðferðar kom þegar ljóst varð að bílafyrirtæki í Shanghæ í Kína, SAIC, vildi ekki fjárfesta í fyrirtækinu. "Ríkisstjórnin gat ekki lánað MG Rover hundrað milljónir punda því samningar tókust ekki við SAIC," sagði Hewitt. MG Rover þurfti að stöðva framleiðslu á fimmtudaginn því birgjar stöðvuðu sendingar sínar til fyrirtæksins, því þeir óttuðust að fá ekkert borgað. Hrun framleiðandans gæti haft áhrif á sex þúsund starfsmenn og þúsundir fleiri birgjastörf, sem skapar væntanlega pólitískan hausverk fyrir bresku ríkisstjórnina dagana fyrir kosningarnar 5. maí. MG Rover var stofnað árið 1905 og selt til BMW í Þýskalandi um 1990 áður en það var keypt aftur til Bretlands af Phoenix Venture Holdings fyrir fjórum árum.
Bílar Mest lesið Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Lífið Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Lífið Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Lífið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Beint flug til Portó Lífið samstarf Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Tilgangslaust að rakka niður klæðaburð fólks Tíska og hönnun HAM boða endalok alls Tónlist Miley losar sig við eftirnafnið Tónlist Þórdís segir skilið við Flekaskil Lífið Fleiri fréttir Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira