Davíð stöðvaði breytingu laga 9. september 2005 00:01
Davíð Oddsson fær á fjórða hundrað þúsund króna í eftirlaun ásamt launum sem formaður bankastjórnar Seðlabanka Íslands þegar hann tekur við starfinu þann 20. október. Eftirlaunin fara stighækkandi til 65 ára aldurs því skerðingin vegna annarra starfa minnkar sem á líður. Lög um eftirlaun ráðherra og þingmanna voru endurskoðuð í lok árs 2003 og í kjölfarið voru ný lög samþykkt. Þegar Fréttablaðið upplýsti snemma árs að nokkrir fyrrverandi ráðherrar þæðu eftirlaun þrátt fyrir að vera enn á fullum launum í öðrum störfum á vegum ríkisins hét Halldór Ásgrímsson því á Alþingi að ákvæðið yrði tekið til endurskoðunar. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins voru framsóknarmenn staðráðnir í því í apríl að afnema ákvæðið úr lögunum en sjálfstæðismenn sögðu það ekki koma til greina. Í þrjá mánuði á vordögum tókust ráðherrar flokkanna á um hvort, og þá hvernig, breyta eigi lögunum og var ætlunin að leggja fram nýtt stjórnarfrumvarp fyrir þinglok í maí. Meðal annars hafa flokkarnir tekist á um það hvort brotið yrði gegn eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar ef tekinn yrði af mönnum réttur sem þeim þegar hefur verið fenginn, það er rétturinn á því að þiggja eftirlaun og laun samhliða. Davíð Oddsson sagði í fjölmiðlum í apríl að ekki stæði til að breyta lögunum. Heimildir Fréttablaðsins segja að framsóknarmenn hafi fallist á kröfur sjálfstæðismanna um að fresta málinu fram á haust. Fulltrúar allra flokka stóðu að frumvarpinu á sínum tíma og hafa allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur lýst yfir vilja til að afnema ákvæðið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Innlent Fleiri fréttir Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Sjá meira