Frekari fjárfestingar á döfinni 18. ágúst 2005 00:01
Stjórnendur FL Group hafa áætlanir um að styrka eiginfjárstöðu félagsins til þess að sækja enn frekar fram á við. Talið er líklegt að félagið gefi út nýtt hlutafé áður en langt um líður en fjölmörg verkefni eru til skoðunar. Félagið birti afkomutölur á miðvikudaginn þar sem kom fram að afkoman er borin uppi af góðum árangri í fjárfestingarstarfsemi. Fleiri samningar á flugvélaleigu eru í burðarliðnum að sögn stjórnenda FL Group. Yfirtökunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu af Eignarhaldsfélagið Oddaflug sé ekki yfirtökuskylt í FL Group vegna þeirra breytinga sem urðu á eignarhaldi í félaginu 1. júlí. Félagið Oddaflug er í eigu Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group. Nefndin kannaði annars vegar hvort Oddaflug hefði í huga að yfirtaka félagið í samráði við Kötlu Investments og Baug Group og hins vegar hvort um viðskiptaleg tengsl væru milli þessara aðila að þau kölluðu á yfirtökuskyldu samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti. "Niðurstaðan staðfestir það sem við töldum alltaf, að við værum ekki einn og sami hópur." Í Áliti Landsbankans, vegna hálfs árs uppgjörs FL Group, segir að eignarhlutir Hannesar, í Oddaflugi og Fjárfestingarfélaginu Prímusi, hafi um tíma farið yfir fjörutíu prósent og því hafi hann verið yfirtökuskyldur. Hannes hafnar þessari fullyrðingu og segir að samanlagður eignarhlutur félaganna hafi verið um 35 prósent eftir viðskipti með bréf FL Group hinn 1. júlí. Kauphöll Íslands hefur til skoðunar viðskipti í FL Group á miðvikudaginn áður en hálfs árs uppgjör félagsins var birt en þá hækkaði gengið um tæp fjögur prósent. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að kauphöllin fari yfir viðskiptin eins og ávallt þegar snöggar verðbreytingar verða. "Við ætlum að fara vandlega yfir viðskiptin. Það er hins vegar rétt að benda á það að verðið gekk til baka í gær. Eðlilegar skýringar geta verið fyrir þessum viðskiptum, að einhver hafi verið að veðja á afkoman rynni stoðum undir einhverjar verðhækkanir."
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira